Sólin Sólin Rís 05:12 • sest 21:41 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 00:00 • Sest 00:00 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 08:09 • Síðdegis: 20:27 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 02:12 • Síðdegis: 14:14 í Reykjavík

Af hverju sígur sjórinn ekki ofan í jörðina?

ÞV

Hér er því miður ekki fullljóst hvað vakir fyrir spyrjanda. Kannski hefur hann horft á poll á malarvegi sem þornar síðan upp bæði af því að vatnið sígur niður í mölina og eins vegna uppgufunar. En ef pollurinn liggur á vatnsþéttu lagi sígur vatnið ekki niður og pollurinn breytist eingöngu vegna uppgufunar og rigningar.

Vatnið í sjónum eða í stöðuvötnum liggur á sama hátt á vatnsheldu lagi og getur ekki sigið lengra niður. Þó getur að vísu komið fyrir að botn stöðuvatna taki skyndilegum breytingum og vatnborðið breytist við það. En þó að einstakir slíkir atburðir geti líka gerst á hafsbotni þá hafa þeir ekki áhrif á sjávarborðið í heild vegna þess hvað hafið er gríðarlega stórt.

Lesandinn getur fundið fleiri og rækilegri svör um þessi efni með því að smella á efnisorðin sem fylgja svarinu.

Höfundur

Þorsteinn Vilhjálmsson

prófessor emeritus, ritstjóri Vísindavefsins 2000-2010 og ritstjóri Evrópuvefsins 2011

Útgáfudagur

18.4.2005

Spyrjandi

Sædis Björk, f. 1995

Tilvísun

ÞV. „Af hverju sígur sjórinn ekki ofan í jörðina?“ Vísindavefurinn, 18. apríl 2005. Sótt 27. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=4908.

ÞV. (2005, 18. apríl). Af hverju sígur sjórinn ekki ofan í jörðina? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=4908

ÞV. „Af hverju sígur sjórinn ekki ofan í jörðina?“ Vísindavefurinn. 18. apr. 2005. Vefsíða. 27. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=4908>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

=

Af hverju sígur sjórinn ekki ofan í jörðina?
Hér er því miður ekki fullljóst hvað vakir fyrir spyrjanda. Kannski hefur hann horft á poll á malarvegi sem þornar síðan upp bæði af því að vatnið sígur niður í mölina og eins vegna uppgufunar. En ef pollurinn liggur á vatnsþéttu lagi sígur vatnið ekki niður og pollurinn breytist eingöngu vegna uppgufunar og rigningar.

Vatnið í sjónum eða í stöðuvötnum liggur á sama hátt á vatnsheldu lagi og getur ekki sigið lengra niður. Þó getur að vísu komið fyrir að botn stöðuvatna taki skyndilegum breytingum og vatnborðið breytist við það. En þó að einstakir slíkir atburðir geti líka gerst á hafsbotni þá hafa þeir ekki áhrif á sjávarborðið í heild vegna þess hvað hafið er gríðarlega stórt.

Lesandinn getur fundið fleiri og rækilegri svör um þessi efni með því að smella á efnisorðin sem fylgja svarinu....