Sólin Sólin Rís 05:12 • sest 21:41 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 00:00 • Sest 00:00 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 08:09 • Síðdegis: 20:27 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 02:12 • Síðdegis: 14:14 í Reykjavík

Geta lífverur lifað á öðrum plánetum án vatns?

JGÞ

Lífið eins og við þekkjum það hér á jörðinni þarfnast vatns. Lífið á jörðinni þróaðist í vatni og vatnið er virkur þátttakandi í allri lífsstarfsemi frumna.

Það er því útilokað að hugsa sér líf af þeirri gerð sem við þekkjum það án vatns. Vísindamenn hafa hins vegar velt því fyrir sér hvort líf hafi einhvers staðar þróast við allt aðrar aðstæður. Til að mynda hefur mönnum dottið í hug að einhverjar lífverur gætu notað kísil í stað kolefnis og komist þannig af án vatns. Sumir hafa líka bent á að hugsanlegt væri að ammoníak gæti komið í stað vatns. Af ammoníaki er nóg af á reikistjörnunni Júpíter. Þessar uppástungur þykja þó ekki sannfærandi.

Þeir sem vilja fræðast meira um þetta er bent á svar Guðmundar Eggertssonar við spurningunni Hvers vegna er alltaf sagt að líf geti ekki þrifist á öðrum hnöttum nema þar sé vatn? Gætu ekki verið til lífverur sem geta lifað án vatns og sólar? en þetta svar byggir einmitt á því.

Annað lesefni:


Þetta svar er í flokknum "bekkirnir spyrja" þar sem starfsfólk vefsins svarar spurningum frá grunnskólabekk í kennslustund, samkvæmt samningi. Lögð er áhersla á skjót svör, stutt og aðgengileg. Oft er byggt á öðrum svörum sem kunna að nýtast almennum lesendum betur.

Höfundur

Útgáfudagur

30.9.2008

Spyrjandi

Natan Kolbeinsson

Tilvísun

JGÞ. „Geta lífverur lifað á öðrum plánetum án vatns?“ Vísindavefurinn, 30. september 2008. Sótt 27. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=49322.

JGÞ. (2008, 30. september). Geta lífverur lifað á öðrum plánetum án vatns? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=49322

JGÞ. „Geta lífverur lifað á öðrum plánetum án vatns?“ Vísindavefurinn. 30. sep. 2008. Vefsíða. 27. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=49322>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

=

Geta lífverur lifað á öðrum plánetum án vatns?
Lífið eins og við þekkjum það hér á jörðinni þarfnast vatns. Lífið á jörðinni þróaðist í vatni og vatnið er virkur þátttakandi í allri lífsstarfsemi frumna.

Það er því útilokað að hugsa sér líf af þeirri gerð sem við þekkjum það án vatns. Vísindamenn hafa hins vegar velt því fyrir sér hvort líf hafi einhvers staðar þróast við allt aðrar aðstæður. Til að mynda hefur mönnum dottið í hug að einhverjar lífverur gætu notað kísil í stað kolefnis og komist þannig af án vatns. Sumir hafa líka bent á að hugsanlegt væri að ammoníak gæti komið í stað vatns. Af ammoníaki er nóg af á reikistjörnunni Júpíter. Þessar uppástungur þykja þó ekki sannfærandi.

Þeir sem vilja fræðast meira um þetta er bent á svar Guðmundar Eggertssonar við spurningunni Hvers vegna er alltaf sagt að líf geti ekki þrifist á öðrum hnöttum nema þar sé vatn? Gætu ekki verið til lífverur sem geta lifað án vatns og sólar? en þetta svar byggir einmitt á því.

Annað lesefni:


Þetta svar er í flokknum "bekkirnir spyrja" þar sem starfsfólk vefsins svarar spurningum frá grunnskólabekk í kennslustund, samkvæmt samningi. Lögð er áhersla á skjót svör, stutt og aðgengileg. Oft er byggt á öðrum svörum sem kunna að nýtast almennum lesendum betur....