Sólin Sólin Rís 05:08 • sest 21:44 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 00:00 • Sest 00:00 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 08:47 • Síðdegis: 21:08 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 02:49 • Síðdegis: 14:50 í Reykjavík
Árnastofnun - mynd í *Árnarstofnun

Hver er uppruni orðsins 'að tvínóna'?

Guðrún Kvaran

Sögnin að tvínóna er ekki gömul í málinu og virðast elstu heimildir um hana vera frá því um 1700 samkvæmt heimildum Orðabókar Háskólans. Merkingin er 'dunda, hika, slóra'.

Síðari hluti orðsins er tengdur hvorugkynsorðinu nón 'tíminn um klukkan 3 síðdegis', kvenkynsorðinu nóna sem í eldra máli var notað um tíðir sungnar um nón og sögninni nóna 'slóra, dunda'. Upphaflega merkingin í tvínóna gæti verið að syngja nóntíðir tvisvar eða tvöfalda og langa nónmessu. Til þess bendir fyrri liðurinn tví-. Við það hefur orðið til merkingin 'hangsa, slóra' því að sumum hefur líklega þótt nóg um þann tíma sem fór í messuna.

Höfundur

Guðrún Kvaran

prófessor

Útgáfudagur

24.8.2005

Spyrjandi

Sigrún Vala Þorgrímsdóttir

Tilvísun

Guðrún Kvaran. „Hver er uppruni orðsins 'að tvínóna'?“ Vísindavefurinn, 24. ágúst 2005. Sótt 28. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=5218.

Guðrún Kvaran. (2005, 24. ágúst). Hver er uppruni orðsins 'að tvínóna'? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=5218

Guðrún Kvaran. „Hver er uppruni orðsins 'að tvínóna'?“ Vísindavefurinn. 24. ágú. 2005. Vefsíða. 28. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=5218>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

=

Hver er uppruni orðsins 'að tvínóna'?
Sögnin að tvínóna er ekki gömul í málinu og virðast elstu heimildir um hana vera frá því um 1700 samkvæmt heimildum Orðabókar Háskólans. Merkingin er 'dunda, hika, slóra'.

Síðari hluti orðsins er tengdur hvorugkynsorðinu nón 'tíminn um klukkan 3 síðdegis', kvenkynsorðinu nóna sem í eldra máli var notað um tíðir sungnar um nón og sögninni nóna 'slóra, dunda'. Upphaflega merkingin í tvínóna gæti verið að syngja nóntíðir tvisvar eða tvöfalda og langa nónmessu. Til þess bendir fyrri liðurinn tví-. Við það hefur orðið til merkingin 'hangsa, slóra' því að sumum hefur líklega þótt nóg um þann tíma sem fór í messuna....