Spurning

Getur fólk sem hefur ekki stúdentspróf sótt námskeið við Háskóla Íslands, til dæmis í jarðfræði?

Spyrjandi

Elín Magnúsdóttir

Svar

Almennt gildir við Háskóla Íslands að þeir einir mega skrá sig í námskeið við skólann sem lokið hafa stúdentsprófi, en til þess að innritast í námskeið í jarðfræði þurfa menn að hafa lokið stúdentsprófi með minnst 30 einingum í náttúruvísindum og 21 einingu í stærðfræði.

Háskólanum er heimilt að veita undanþágur frá inntökuskilyrðum, en heimildin hefur hins vegar ekki verið nýtt undanfarin ár.

Fólk sem ekki uppfyllir inntökuskilyrði getur sótt um leyfi kennara í viðkomandi námskeiði til að sitja í fyrirlestrum og fylgjast með. Ef slíkt leyfi er veitt fær viðkomandi ekki að skila inn verkefnum eða taka próf, og fær að sjálfsögðu engar einingar fyrir námskeiðin.



Jarðfræði er kennd í Öskju, Náttúrufræðahúsi Háskóla Íslands. Með leyfi kennara er hægt að sitja námskeið í jarðfræði án stúdentsprófs en slíkt gefur engar einingar.

Reglur um inntöku nýrra stúdenta í Háskóla Íslands er að finna á heimasíðu kennslusviðs HÍ. Á síðu Raunvísindadeildar er að finna upplýsingar um þær kröfur sem gerðar eru til stúdenta sem vilja hefja nám í deildinni, jarðfræði þar með talin.

Mynd: Framkvæmdasýsla ríkisins

Um þessa spurningu

Dagsetning

Útgáfudagur22.9.2006

Tilvísun

Þórður Kristinsson. „Getur fólk sem hefur ekki stúdentspróf sótt námskeið við Háskóla Íslands, til dæmis í jarðfræði? “. Vísindavefurinn 22.9.2006. http://visindavefur.is/?id=6203. (Skoðað 25.5.2013).

Höfundur

Þórður Kristinssonframkv.stj. akademískrar stjórnsýslu við HÍ



Leit


Vísindadagatalið

Kristján Eldjárn
(1916-1982)
( Fyrri Næsti )

Fornleifafræðingur og síðar forseti, skrifaði m.a. bókina Kuml og haugfé 1957 og átti mikinn þátt í að efla áhuga á fornleifafræði hér á landi.
Lesa meira...

Aðalstyrktaraðili

Happdrætti Háskólans

Háskóli unga fólksins 2013