Sólin Sólin Rís 05:05 • sest 21:47 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 00:00 • Sest 00:00 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 09:35 • Síðdegis: 22:03 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 03:36 • Síðdegis: 15:35 í Reykjavík

Hvort notar maður meira vatn í sturtu eða baði?

EDS og ÞV

Í samanburði sem þessum þarf að gefa sér einhverjar forsendur. Mjög misjafnt er hversu lengi fólk stendur undir sturtunni, hve mikill kraftur er á vatninu og hversu mikið vatn er sett í baðkarið. Hér er stuðst við upplýsingar sem má finna á heimasíðu Vistverndar í verki, en mati og áherslum í þeim þó breytt nokkuð.

Ætla má að við notum um 240 lítra af vatni þegar farið er í bað. Vatnsnotkunin er yfirleitt mun minni þegar farið er í sturtu. Ef gert er ráð fyrir að venjulegur sturtuhaus sprauti 12 lítrum á mínútu þá er vatnsnotkunin um 60 lítrar í 5 mínútna sturtu, fjórum sinnum minni en í baði. Eldri gerðir sturtuhausa nota þó allt að 24 lítra á mínútu og þá er 10 mínútna sturta orðin álíka vatnsfrek og baðið, en sá tími er líka í lengsta lagi.

Fyrir utan það hversu lengi hver og einn stendur undir bununni ræður sturtuhausinn miklu um það hversu mikið vatn er notað í eina sturtu.

Hægt er að draga úr vatnsnotkun í sturtu með því að nota sturtuhausa sem taka lítið vatn, til dæmis litla hausa sem hægt er að halda á, eða sérstaka sparnaðarhausa. Þeir eyða yfirleitt á bilinu 6 til 10 lítrum á mínútu þannig að í 5 mínútna sturtu getur vatnsnotkunin verið 30 lítrar eða áttundi partur af því sem fer í baðið. Ef við förum í sturtu í baðkeri og setjum tappann í á meðan getum við séð með eigin augum hve lítil vatnsnotkunin er samanborið við fullt baðker.

Hér á Íslandi er ofankoma yfirleitt mikil, bæði rigning og snjór, og því yfrið nóg af vatni kringum okkur. Hins vegar kostar tiltölulega mikla orku að hita baðvatnið og því skiptir þessi spurning okkur talsverðu máli. Víða erlendis er vatn auk þess mjög af skornum skammti í umhverfinu og því leggja margar þjóðir mikla áherslu á að spara vatn og nýta það sem best. Auk þess sem hér hefur verið nefnt geta vönduð blöndunartæki haft talsverð áhrif á nýtinguna enda hafa orðið miklar framfarir á því sviði á undaförnum áratugum.

Skoðið einnig svar Ingibjargar Elsu Björnsdóttur við spurningunni Hversu mikið vatn notar hver Íslendingur á ári að meðaltali?

Mynd:

Höfundar

Emilía Dagný Sveinbjörnsdóttir

landfræðingur og starfsmaður Vísindavefsins

Þorsteinn Vilhjálmsson

prófessor emeritus, ritstjóri Vísindavefsins 2000-2010 og ritstjóri Evrópuvefsins 2011

Útgáfudagur

11.4.2007

Spyrjandi

Halldór Halldórsson

Tilvísun

EDS og ÞV. „Hvort notar maður meira vatn í sturtu eða baði?“ Vísindavefurinn, 11. apríl 2007. Sótt 29. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=6582.

EDS og ÞV. (2007, 11. apríl). Hvort notar maður meira vatn í sturtu eða baði? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=6582

EDS og ÞV. „Hvort notar maður meira vatn í sturtu eða baði?“ Vísindavefurinn. 11. apr. 2007. Vefsíða. 29. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=6582>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

Mynd:...