Sólin Sólin Rís 05:08 • sest 21:44 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 00:00 • Sest 00:00 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 08:47 • Síðdegis: 21:08 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 02:49 • Síðdegis: 14:50 í Reykjavík

Hvað gerist í líkamanum þegar maður fær marbletti?

JGÞ

Við fáum marbletti ef högg sem lendir á líkamanum nær til mjúku vefjanna sem eru undir húðinni. Það sem gerist þá er að litlar bláæðar og háræðar undir húðinni rofna og blóð lekur úr þeim. Í kjölfarið safnast rauðkorn fyrir undir húðinni og við sjáum þau sem blá, fjólublá, rauð eða svört nálægt þeim stað sem höggið lenti.

Þessir skrautlegu litir eru í raun merki um að líkaminn er að brjóta niður blóðfrumurnar sem komu úr æðunum.

Marinn ökkli eftir tognun.

Hægt er að lesa meira um marbletti í svari Þuríðar Þorbjarnardóttur við spurningunni Hvað er marblettur?

Mynd: Bruise á Wikipedia. Sótt 8. 4. 2008.


Þetta svar er í flokknum "bekkirnir spyrja" þar sem starfsfólk vefsins svarar spurningum frá grunnskólabekk í kennslustund, samkvæmt samningi. Lögð er áhersla á skjót svör, stutt og aðgengileg. Oft er byggt á öðrum svörum sem kunna að nýtast almennum lesendum betur.

Höfundur

Jón Gunnar Þorsteinsson

bókmenntafræðingur og ritstjóri Vísindavefsins

Útgáfudagur

4.3.2008

Spyrjandi

Inga Hrönn Jónsdóttir, f. 1995, Hólmfríður Birta Ragnheiðardóttir, f. 1997

Tilvísun

JGÞ. „Hvað gerist í líkamanum þegar maður fær marbletti?“ Vísindavefurinn, 4. mars 2008. Sótt 28. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=7163.

JGÞ. (2008, 4. mars). Hvað gerist í líkamanum þegar maður fær marbletti? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=7163

JGÞ. „Hvað gerist í líkamanum þegar maður fær marbletti?“ Vísindavefurinn. 4. mar. 2008. Vefsíða. 28. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=7163>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

=

Hvað gerist í líkamanum þegar maður fær marbletti?
Við fáum marbletti ef högg sem lendir á líkamanum nær til mjúku vefjanna sem eru undir húðinni. Það sem gerist þá er að litlar bláæðar og háræðar undir húðinni rofna og blóð lekur úr þeim. Í kjölfarið safnast rauðkorn fyrir undir húðinni og við sjáum þau sem blá, fjólublá, rauð eða svört nálægt þeim stað sem höggið lenti.

Þessir skrautlegu litir eru í raun merki um að líkaminn er að brjóta niður blóðfrumurnar sem komu úr æðunum.

Marinn ökkli eftir tognun.

Hægt er að lesa meira um marbletti í svari Þuríðar Þorbjarnardóttur við spurningunni Hvað er marblettur?

Mynd: Bruise á Wikipedia. Sótt 8. 4. 2008.


Þetta svar er í flokknum "bekkirnir spyrja" þar sem starfsfólk vefsins svarar spurningum frá grunnskólabekk í kennslustund, samkvæmt samningi. Lögð er áhersla á skjót svör, stutt og aðgengileg. Oft er byggt á öðrum svörum sem kunna að nýtast almennum lesendum betur....