Sólin Sólin Rís 04:14 • sest 22:36 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 09:20 • Sest 04:43 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 11:05 • Síðdegis: 23:31 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 04:56 • Síðdegis: 17:02 í Reykjavík

Hvar í heilanum eru minningar geymdar?

JGÞ

Um þetta er meðal annars fjallað í ýtarlegu svari Jörgens Pind við spurningunni Hvernig fer heilinn í okkur að því að muna?


Mynd sem sýnir hvernig mismunandi svæði heilans virkjast eftir því hvort við notum sjón- eða heyrnarsvæði heilans.

Þar kemur fram að svokallaður dreki (e. hippocampus) gegnir mikilvægu hlutverki í því að festa hluti í minninu. Minningar eru hins vegar ekki geymdar til lengri tíma í drekanum heldur líklega í heilaberkinum og yfirleitt nálægt þeim svæðum þar sem minningarnar erta heilann fyrst.

Sjónrænar minningar fara í geymslu nálægt sjónsvæðum heilans sem eru aftan á hnakkablaði en hljóðrænar minningar eru geymdar á gagnaugablaði heilans, nálægt heyrnarsvæðunum.

Frekara lesefni um heilann á Vísindavefnum:

Mynd:


Þetta svar er í flokknum "bekkirnir spyrja" þar sem starfsfólk vefsins svarar spurningum frá grunnskólabekk í kennslustund, samkvæmt samningi. Lögð er áhersla á skjót svör, stutt og aðgengileg. Oft er byggt á öðrum svörum sem kunna að nýtast almennum lesendum betur.

Höfundur

Jón Gunnar Þorsteinsson

bókmenntafræðingur og ritstjóri Vísindavefsins

Útgáfudagur

4.3.2008

Spyrjandi

Guðrún Inga Eggertsdóttir, f. 1995

Tilvísun

JGÞ. „Hvar í heilanum eru minningar geymdar?“ Vísindavefurinn, 4. mars 2008. Sótt 14. maí 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=7165.

JGÞ. (2008, 4. mars). Hvar í heilanum eru minningar geymdar? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=7165

JGÞ. „Hvar í heilanum eru minningar geymdar?“ Vísindavefurinn. 4. mar. 2008. Vefsíða. 14. maí. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=7165>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

=

Hvar í heilanum eru minningar geymdar?
Um þetta er meðal annars fjallað í ýtarlegu svari Jörgens Pind við spurningunni Hvernig fer heilinn í okkur að því að muna?


Mynd sem sýnir hvernig mismunandi svæði heilans virkjast eftir því hvort við notum sjón- eða heyrnarsvæði heilans.

Þar kemur fram að svokallaður dreki (e. hippocampus) gegnir mikilvægu hlutverki í því að festa hluti í minninu. Minningar eru hins vegar ekki geymdar til lengri tíma í drekanum heldur líklega í heilaberkinum og yfirleitt nálægt þeim svæðum þar sem minningarnar erta heilann fyrst.

Sjónrænar minningar fara í geymslu nálægt sjónsvæðum heilans sem eru aftan á hnakkablaði en hljóðrænar minningar eru geymdar á gagnaugablaði heilans, nálægt heyrnarsvæðunum.

Frekara lesefni um heilann á Vísindavefnum:

Mynd:


Þetta svar er í flokknum "bekkirnir spyrja" þar sem starfsfólk vefsins svarar spurningum frá grunnskólabekk í kennslustund, samkvæmt samningi. Lögð er áhersla á skjót svör, stutt og aðgengileg. Oft er byggt á öðrum svörum sem kunna að nýtast almennum lesendum betur....