Sólin Sólin Rís 08:52 • sest 18:31 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 07:29 • Sest 06:39 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 11:08 • Síðdegis: 23:47 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 04:57 • Síðdegis: 17:21 í Reykjavík

LeiðbeiningarTil baka

Sendu inn spurningu

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Hvernig myndast hjólför á vegum og hefur hlýnandi loftslag áhrif á þetta?

Sigurður Erlingsson

Upprunalegu spurningarnar voru:
Hvers vegna eru göturnar með svona djúpum hjólförum í vetur? Hefur þetta eitthvað að gera með hlýnun jarðar, minna frost á veturna?

Hjólför myndast í vegum og götum af tveimur ástæðum, annars vegar vegna áraunar þungra öxla og hins vegar vegna nagladekkjaslits minni bíla.

Á höfuðborgarsvæðinu eru flestir vegir og götur malbikuð. Á sumrin hitnar malbikið og verður þjálla (mýkra). Í hvert sinn sem þungur bíll ekur eftir veginum við þannig aðstæður getur vegyfirborðið því varanlega þjappast örlítið saman. Þessi samþjöppun safnast saman og þannig myndast hjólför með tímanum. Á heitum sólríkum sumardögum er þessi gerð hjólfaramyndunar meiri en þegar skýjað er og lofthiti lægri. Þannig eykur hlýrra veðurfar á sumrin hjólfaramyndun af völdum þungu bílanna.

Á veturna er malbikslagið hins vegar kalt og þessi varanlega þjöppun þungu bílanna tiltölulega lítil. Á þessum árstíma er hins vegar töluvert um að minni bílar séu á nagladekkjum. Þegar ekið er eftir veginum á negldum dekkjum lemja naglarnir stöðugt vegyfirborðið og brjóta steinefnið smám saman niður. Nagldekkjaslitið er háð ýmsum þáttum svo sem ökuhraða, þyngd bíla, hvort vegyfirborðið er blautt eða þurrt, hvort yfirborðið er saltað eða ekki, hvort það er þakið snjó eða ís eða er bert. Það leiðir af sjálfu sér að slit vegna nagladekkja er minna á þeim landsvæðum þar sem snjóþekja er að jafnaði viðvarandi stóran hluta vetrar heldur en til dæmis á höfuðborgarsvæðinu.

Á vetrum þegar yfirborð veganna er mikið til autt, það er snjóþekja lítil og yfirborðið jafnvel rakt og umferð er greið má búast við auknu nagladekkjasliti. Rafmagnsbílar eru einnig töluvert þyngri en sambærilegir bílar knúnir jarðefnaeldsneyti. Þyngdin sem færist niður í hvert hjól bílsins er þess vegna meiri og því valda þeir meira sliti en sambærilegir jarðefnaknúnir bílar. Veðurfar hefur þannig töluverð áhrif á hjólfaramyndunina, ekki síst ef breytingar á því hafa í för með sér minni snjókomu á veturna og þar með lengri tímabil sem ekið er á nagladekkjum yfir bert malbik.

Myndir:

Höfundur

Sigurður Erlingsson

prófessor við Umhverfis- og byggingarverkfræðideild HÍ

Útgáfudagur

24.2.2026

Spyrjandi

NN.

Tilvísun

Sigurður Erlingsson. „Hvernig myndast hjólför á vegum og hefur hlýnandi loftslag áhrif á þetta?“ Vísindavefurinn, 24. febrúar 2026, sótt 24. febrúar 2026, https://visindavefur.is/svar.php?id=88460.

Sigurður Erlingsson. (2026, 24. febrúar). Hvernig myndast hjólför á vegum og hefur hlýnandi loftslag áhrif á þetta? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=88460

Sigurður Erlingsson. „Hvernig myndast hjólför á vegum og hefur hlýnandi loftslag áhrif á þetta?“ Vísindavefurinn. 24. feb. 2026. Vefsíða. 24. feb. 2026. <https://visindavefur.is/svar.php?id=88460>.

Chicago | APA | MLA

Senda grein til vinar

Myndir:...