Hvaða áhrif gæti upptaka evru haft á íslenskan vinnumarkað og arðsemi fyrirtækja?Langt fram eftir 20. öld réðst gangur íslensks efnahagslífs að mestu leyti af því hvernig áraði í sjávarútvegi. Í góðærum var uppgangur en þegar afli brást eða verð féll á erlendum mörkuðum reið samdráttur eða kreppa yfir hagkerfið. Eftir því sem útflutningi hefur vaxið fiskur um hrygg hefur vægi sjávarútvegs farið minnkandi og íslenska hagkerfið gengur nú í betri takt við hagkerfi helstu landa í Evrópu. Á myndinni hér fyrir neðan getur að líta hagvöxt á Íslandi og á evrusvæðinu árin 2014-2025. Að jafnaði var hagvöxtur á Íslandi 2,8% á þessum árum en 1,5% á evrusvæðinu. Glögglega má sjá áhrif COVID-19 kreppunnar, en einnig kemur berlega fram að sveiflur í hagvexti á Íslandi voru meiri á þessu tímabili en á evrusvæðinu, enda var staðalfrávik hagvaxtar á Íslandi á þessum árum 4,0 en 2,8 á evrusvæðinu.

Hagvöxtur á Íslandi og hjá löndum á evrusvæðinu 2014-2025. Hlutfallsleg breyting á vergri landsframleiðslu frá fyrra ári. Heimild: Eurostat.

Hagvöxtur á mann á Íslandi og hjá löndum á evrusvæðinu 2014-2025. Hlutfallsleg magnbreyting á vergri landsframleiðslu frá fyrra ári. Heimild: Eurostat.
- Yfirlitsmynd: File:Sundahöfn in Port of Reykjavík.jpg - Wikimedia Commons. (Sótt 11.07.2026). Myndin er birt undir CC-leyfi.