Sólin Sólin Rís 05:36 • sest 21:19 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 16:44 • Sest 05:50 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 04:37 • Síðdegis: 17:05 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 10:57 • Síðdegis: 23:09 í Reykjavík

Hvaða eitur er í sveppunum sem fundust í Kjarnaskógi nýlega og hver eru einkenni eitrunarinnar?

Curtis Snook

Eiturefnið tilheyrir flokki sem heitir amatoxín. Efni í þeim flokki finnast í sveppum og eru skaðleg fyrir lifrina. Í slæmum tilfellum getur maður fengið lifrarbilun og dáið ef ekki er hægt að framkvæma lifrarflutning. Ef einkenni koma fram, sem þau gera ekki alltaf, eru þau magaóþægindi, ógleði, uppköst og/eða niðurgangur fljótlega eftir inntöku. Byrjunareinkennin hverfa fljótlega en koma fram aftur þegar lifrarskaði hefst eftir 12-24 klst. Einkenni þá geta verið versnandi magaverkur, ógleði og uppköst, lækkaður blóðþrýstingur og fleira.

Myndin er fengin af síðu The Toxikon Multimedia Project. Hún sýnir sveppinn Amanita phalloides en sveppir af þeirri ættkvísl framleiða amatoxín.

Höfundur

klínískur eiturefnafræðingur við Landspítala - Háskólasjúkrahús

Útgáfudagur

16.3.2001

Spyrjandi

Bára Kristjánsdóttir

Tilvísun

Curtis Snook. „Hvaða eitur er í sveppunum sem fundust í Kjarnaskógi nýlega og hver eru einkenni eitrunarinnar?“ Vísindavefurinn, 16. mars 2001. Sótt 20. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=1389.

Curtis Snook. (2001, 16. mars). Hvaða eitur er í sveppunum sem fundust í Kjarnaskógi nýlega og hver eru einkenni eitrunarinnar? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=1389

Curtis Snook. „Hvaða eitur er í sveppunum sem fundust í Kjarnaskógi nýlega og hver eru einkenni eitrunarinnar?“ Vísindavefurinn. 16. mar. 2001. Vefsíða. 20. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=1389>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

=

Hvaða eitur er í sveppunum sem fundust í Kjarnaskógi nýlega og hver eru einkenni eitrunarinnar?
Eiturefnið tilheyrir flokki sem heitir amatoxín. Efni í þeim flokki finnast í sveppum og eru skaðleg fyrir lifrina. Í slæmum tilfellum getur maður fengið lifrarbilun og dáið ef ekki er hægt að framkvæma lifrarflutning. Ef einkenni koma fram, sem þau gera ekki alltaf, eru þau magaóþægindi, ógleði, uppköst og/eða niðurgangur fljótlega eftir inntöku. Byrjunareinkennin hverfa fljótlega en koma fram aftur þegar lifrarskaði hefst eftir 12-24 klst. Einkenni þá geta verið versnandi magaverkur, ógleði og uppköst, lækkaður blóðþrýstingur og fleira.

Myndin er fengin af síðu The Toxikon Multimedia Project. Hún sýnir sveppinn Amanita phalloides en sveppir af þeirri ættkvísl framleiða amatoxín....