Sólin Sólin Rís 05:19 • sest 21:35 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 25:18 • Sest 04:56 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 07:07 • Síðdegis: 19:24 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 01:08 • Síðdegis: 13:14 í Reykjavík

Hvað hafa Bandaríkjamenn farið margar geimferðir frá upphafi?

Björn Brynjúlfur Björnsson

Bandaríkjamenn hafa farið 136 mannaðar ferðir frá upphafi. Frægasta verkefni NASA í slíkum ferðum er sjálfsagt Apollo-verkefnið, en þær flaugar rannsökuðu tunglið:Í töluröðina vantar heiti sem voru aldrei notuð til neins og líka ferðir sem voru ekki mannaðar.

Einnig má nefna Skylab-verkefnið:Þar að auki eru verkefnin Mercury og Gemini, sem voru tilraunaferðir til að undirbúa Apollo (alls 17 ferðir); Apollo-Soyuz, sem var sameiginlegt verkefni Bandaríkjanna og Sovétríkjanna; og síðast en ekki síst Space Shuttle-verkefnið sem hófst 1981 og hefur staðið æ síðan með hléi 1986-88 eftir að geimflaugin Challenger fórst með sjö manna áhöfn sinni skömmu eftir flugtak. Alls hafa verið farnar 103 ferðir í Space Shuttle-verkefninu, sú síðasta 8. mars. Næsta ferð er áætluð 19. apríl.

Allar þessar ferðir voru á vegum NASA (National Aeronautics and Space Administration).

Heimild: www.nasa.gov

Mynd: NASA


Þetta svar er eftir grunnskólanema á námskeiði Vísindavefsins sem haldið er í samvinnu við samtökin Heimili og skóla og Fræðslumiðstöð Reykjavíkurborgar vegna bráðgerra barna.

Höfundur

nemandi í Vesturbæjarskóla

Útgáfudagur

7.4.2001

Spyrjandi

Ágúst Freyr Svanbergsson

Tilvísun

Björn Brynjúlfur Björnsson. „Hvað hafa Bandaríkjamenn farið margar geimferðir frá upphafi?“ Vísindavefurinn, 7. apríl 2001. Sótt 25. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=1481.

Björn Brynjúlfur Björnsson. (2001, 7. apríl). Hvað hafa Bandaríkjamenn farið margar geimferðir frá upphafi? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=1481

Björn Brynjúlfur Björnsson. „Hvað hafa Bandaríkjamenn farið margar geimferðir frá upphafi?“ Vísindavefurinn. 7. apr. 2001. Vefsíða. 25. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=1481>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

=

Hvað hafa Bandaríkjamenn farið margar geimferðir frá upphafi?
Bandaríkjamenn hafa farið 136 mannaðar ferðir frá upphafi. Frægasta verkefni NASA í slíkum ferðum er sjálfsagt Apollo-verkefnið, en þær flaugar rannsökuðu tunglið:

Í töluröðina vantar heiti sem voru aldrei notuð til neins og líka ferðir sem voru ekki mannaðar.

Einnig má nefna Skylab-verkefnið:Þar að auki eru verkefnin Mercury og Gemini, sem voru tilraunaferðir til að undirbúa Apollo (alls 17 ferðir); Apollo-Soyuz, sem var sameiginlegt verkefni Bandaríkjanna og Sovétríkjanna; og síðast en ekki síst Space Shuttle-verkefnið sem hófst 1981 og hefur staðið æ síðan með hléi 1986-88 eftir að geimflaugin Challenger fórst með sjö manna áhöfn sinni skömmu eftir flugtak. Alls hafa verið farnar 103 ferðir í Space Shuttle-verkefninu, sú síðasta 8. mars. Næsta ferð er áætluð 19. apríl.

Allar þessar ferðir voru á vegum NASA (National Aeronautics and Space Administration).

Heimild: www.nasa.gov

Mynd: NASA


Þetta svar er eftir grunnskólanema á námskeiði Vísindavefsins sem haldið er í samvinnu við samtökin Heimili og skóla og Fræðslumiðstöð Reykjavíkurborgar vegna bráðgerra barna....