Sólin Sólin Rís 05:26 • sest 21:28 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 21:24 • Sest 05:22 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 06:10 • Síðdegis: 18:30 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 00:11 • Síðdegis: 12:20 í Reykjavík

Hverjir byggðu píramídana og hversu gamlir eru þeir?

Baldvin Ingi Gunnarsson og Sindri Guðmundsson

Píramídi í Giza í Norður-Egyptalandi.

Píramídar hafa fundist í Mið- og Suður-Ameríku, Súdan, Eþíópíu, Grikklandi, Kýpur, Ítalíu, Indlandi, Tælandi og á nokkrum eyjum í Kyrrahafi. Frægustu píramídarnir eru þó í Giza í Norður-Egyptalandi (sjá mynd). Þeir eru meðal sjö undra veraldar og voru reistir á árunum 2575-2465 fyrir Krist, sem sagt fyrir um það bil 5000 árum. Það voru 20.000-30.000 þrælar, vinnumenn eða smábændur sem byggðu þá.

Píramídarnir í Giza voru byggðir sem grafhýsi fyrir faraóana sem voru egypskir kóngar. Faraóunum voru gefnar gjafir til þess að auðvelda þeim lífið eftir dauðann. Egyptar trúðu sem sagt á líf eftir dauðann.

Heimild:

Þetta svar er eftir grunnskólanema á námskeiði Vísindavefsins sem haldið er í samvinnu við samtökin Heimili og skóla og Fræðslumiðstöð Reykjavíkurborgar vegna bráðgerra barna.

Til fróðleiks birtum við hér mynd þar sem sýnt er hvernig Egyptar fóru hugsanlega að því að byggja píramídana. Myndin er á blaðsíðu 62 í Heimsmynd á hverfanda hveli, 1. bindi, eftir Þorstein Vilhjálmsson. (Ritstjórn)

Höfundar

grunnskólanemi

Útgáfudagur

27.4.2001

Spyrjandi

Þorvaldur S. Björnsson, f. 1983

Tilvísun

Baldvin Ingi Gunnarsson og Sindri Guðmundsson. „Hverjir byggðu píramídana og hversu gamlir eru þeir?“ Vísindavefurinn, 27. apríl 2001. Sótt 23. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=1541.

Baldvin Ingi Gunnarsson og Sindri Guðmundsson. (2001, 27. apríl). Hverjir byggðu píramídana og hversu gamlir eru þeir? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=1541

Baldvin Ingi Gunnarsson og Sindri Guðmundsson. „Hverjir byggðu píramídana og hversu gamlir eru þeir?“ Vísindavefurinn. 27. apr. 2001. Vefsíða. 23. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=1541>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

...