Sólin Sólin Rís 05:40 • sest 21:16 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 15:13 • Sest 05:59 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 03:57 • Síðdegis: 16:31 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 10:23 • Síðdegis: 22:34 í Reykjavík
Árnastofnun - mynd í *Árnarstofnun

Hvert er elsta tungumál sem enn er talað og hvert er elsta tungumál sem vitað er um?

Guðrún Kvaran

Þessari spurningu er erfitt að svara þar sem enn er afar margt á huldu um tungumál heimsins og margt sem þarfnast rannsókna. Enginn veit um raunverulegan aldur ýmissa indíánamála í Suður-, Mið- og Norður-Ameríku svo að dæmi sé tekið.

Allmikið er vitað um sum ævaforn mál. Arabíska er til dæmis afar gamalt mál og hana tala um 150 milljónir manna. Sú staðreynd að hún er helgisiðamál alls staðar þar sem íslömsk trú er ríkjandi hefur styrkt hana sem ritmál. Vissulega eru fjölmargar mállýskur í þeim löndum þar sem arabíska er töluð en ritmálið stendur á gömlum merg. Hið klassíska arabíska bókmál er rakið aftur á 8. öld og Kóraninn var skrifaður niður þegar á 7. öld. Áhrif hans og klassískrar arabísku fara vaxandi á talað mál þannig að segja má að arabíska hafi verið notuð í hinum íslamska heimi óslitið eins langt aftur og heimildir sýna. Útbreiðsla Kóransins og vaxandi lestrarkunnátta almennings hefur styrkt arabískt talmál verulega.

Hebreska var töluð löngu fyrir Krist. Á myndinni sést brot úr rollu Isaiah (e. Isaiah scroll) sem er ein af rollunum sem fundist hafa í Qumran hellunum við Dauðahafið. Rollan er talin hafa verið rituð á tímabilinu 300-100 fyrir Krist.

Annað gamalt mál er hebreska. Fornhebreska var töluð frá 9. öld fyrir Krist og fram á 3. öld eftir Krist. Hún hélt velli sem trúmál gyðinga en var endurreist sem talmál á 19. öld.

Latína er enn eitt fornt mál. Hún er hvergi töluð meðal almennings en klassísk latína (ca 90 f. Kr. - 14. e. Kr.) lifir í kirkjuhaldi rómversk-kaþólsku kirkjunnar.

Sjá einnig:

Mynd:

Höfundur

Guðrún Kvaran

prófessor

Útgáfudagur

27.4.2001

Spyrjandi

Markús Már

Tilvísun

Guðrún Kvaran. „Hvert er elsta tungumál sem enn er talað og hvert er elsta tungumál sem vitað er um?“ Vísindavefurinn, 27. apríl 2001. Sótt 19. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=1545.

Guðrún Kvaran. (2001, 27. apríl). Hvert er elsta tungumál sem enn er talað og hvert er elsta tungumál sem vitað er um? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=1545

Guðrún Kvaran. „Hvert er elsta tungumál sem enn er talað og hvert er elsta tungumál sem vitað er um?“ Vísindavefurinn. 27. apr. 2001. Vefsíða. 19. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=1545>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

Mynd:...