Orðið guð er náskylt orðinu goð 'guð heiðinna manna' og er eiginlega tvímynd þess orðs orðin til við a-hljóðvarp. Goð er hvorugkyns og var það einnig í fornu máli en orðið guð breytti um kyn og fékk annað hlutverk við kristnitöku. Sama orð er notað í öðrum Norðurlandamálum, í færeysku Gud, í norsku, sænsku, dönsku gud. Það var notað þegar til forna í vesturgermönskum málum um guð kristinna manna, til dæmis fornháþýsku got, fornensku og fornsaxnesku gud, og í gotnesku, eina austurgermanska málinu, var myndin guþ. Í þýsku er orðið nú Gott og í ensku god. Goð/guð er germanskt orð að uppruna og eru tengsl við aðrar indóevrópska málaflokka óljós.
Mynd: HB