Sólin Sólin Rís 05:19 • sest 21:35 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 25:18 • Sest 04:56 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 07:07 • Síðdegis: 19:24 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 01:08 • Síðdegis: 13:14 í Reykjavík

Hvað átti Johann Sebastian Bach mörg börn?

Grétar Stefánsson

Þýska tónskáldið Johann Sebastian Bach (1685-1750) eignaðist tuttugu börn í tveimur hjónaböndum. Með fyrri eiginkonu sinni, Maríu Barböru Bach, átti hann sjö börn og með þeirri síðari, Önnu Magdalenu Wilcke, eignaðist hann 13. Af tuttugu börnum tónskáldsins dóu alls tíu í æsku.

Þrír synir Bachs voru kunn tónskáld og stóð faðirinn í skugga þeirra í lifanda lífi. Wilhelm Friedemann Bach (1710-84) var elsti sonur Bachs, hann var kunnur orgelleikari. Carl Philipp Emanuel Bach (1714-88) lék tónlist við hirð Friðriks mikla og samdi fjölmörg píanóverk. Johann Christian Bach (1735-82) var yngsti sonur tónskáldsins, hann hefur verið nefndur enski Bach eða Lundúna-Bach þar sem hann bjó í Lundúnum.

Á meðal þekktra verka eftir Bach má nefnda Jóhannesarpassíuna, Jólaóratoríuna og Brandenborgarkonsertana.

Heimildir og mynd

Þetta svar er eftir grunnskólanemanda á námskeiði Vísindavefsins sem haldið er í samvinnu við samtökin Heimili og skóla og Fræðslumiðstöð Reykjavíkurborgar vegna bráðgerra barna.

Höfundur

grunnskólanemi í Ölduselsskóla

Útgáfudagur

4.11.2002

Spyrjandi

María Guðnadóttir, f. 1990

Tilvísun

Grétar Stefánsson. „Hvað átti Johann Sebastian Bach mörg börn?“ Vísindavefurinn, 4. nóvember 2002. Sótt 25. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=2832.

Grétar Stefánsson. (2002, 4. nóvember). Hvað átti Johann Sebastian Bach mörg börn? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=2832

Grétar Stefánsson. „Hvað átti Johann Sebastian Bach mörg börn?“ Vísindavefurinn. 4. nóv. 2002. Vefsíða. 25. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=2832>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

...