Sólin Sólin Rís 05:43 • sest 21:13 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 13:37 • Sest 06:11 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 02:59 • Síðdegis: 15:47 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 09:39 • Síðdegis: 21:50 í Reykjavík

Hvað er blogg og hvaðan er það upprunnið?

Daði Ingólfsson

Blogg er í stuttu máli dagbókarform á netinu. Á ensku er hugtakið 'blog' stytting á orðinu 'weblog' en 'log' er nokkurs konar dagbók eða kerfisbundin skráning. Í flugi er til að mynda haldin svokölluð 'leiðarflugbók' eða 'flugdagbók', en á ensku nefnist hún 'flight log' eða 'journey logbook'.

Bloggið rekur rætur sínar til ársins 1998 þegar vefáhugamenn tóku eftir því að fólk var farið að halda eins konar dagbækur á netinu; skrifa stuttar, persónulegar, dagsettar færslur á heimasíðum sínum. Þessar færslur hafa verið afar fjölbreyttar allt frá upphafi. Þær innihalda til dæmis hversdagslegar hugleiðingar, stuttar ritgerðir, skáldlegan texta, húmor, ljósmyndir, tengla á aðrar síður og fleira sem fólk vill koma á framfæri. Í fyrstu voru það helst kunnáttumenn á tölvur sem "blogguðu" en með tilkomu vefsíðna eins og Blogger og Groksoup.com, sem starfar ekki lengur, komust venjulegir vefáhugamenn á bragðið. Nú þurfti ekki lengur þekkingu á forritun til að blogga; nóg var að kunna að vafra.

Í byrjun árs 1999 var einungis vitað um 23 bloggsíður, en með tilkomu fyrrnefndra vefsíðna, auk annarra, fóru þúsundir að skrifa á netið: Til að tjá sig um allt og ekkert, koma sér á framfæri eða til að koma á auðveldum samskiptum við fjölskyldu, vini eða viðskiptafélaga, nær sem fjær. Eitt helsta einkenni bloggsins er að þar eru fyrst og fremst persónulegar skoðanir og vangaveltur einstaklingsins, ólíkt úthugsuðum heimasíðum fyrirtækja sem unnar eru af dýrum auglýsinga- og almannatengslafyrirtækjum. Því má segja að bloggið haldi ennþá sínum upprunalega einfald- og heiðarleika.

Bloggið er ný bókmenntategund í örri þróun. Það mætti segja að það sé nútímalegur bræðingur af hinni hefðbundnu dagbók, sendibréfinu, tölvupósti og persónulegum heimasíðum. Margir skáldsagnahöfundar hafa nýtt sér dagbókarformið í textum sínum og nægir þar að nefna skáldsögurnar The Secret Diary Of Adrian Mole, Aged 13.3/4 eftir Sue Townsend og Dagbók Bridget Jones eftir Helen Fielding. Raunverulegar dagbækur hafa líka verið gefnar út, eins og til dæmis Dagbók Önnu Frank. Skáldsögur hafa einnig verið ritaðar í sendibréfaformi, en sú frægasta er vafalaust Les Liaisons Dangereuses eftir Choderlos de Laclos. Við bíðum samt enn eftir skáldsögum byggðum á tölvupósti, en þess er sjálfsagt ekki langt að bíða.

Nú verður æ vinsælla meðal rithöfunda að hjálpast að með fagurfræðilegan texta, og má þar nefna samstarf Stephen King og Peter Straub, sem unnu saman að bókunum The Talisman og The Black House með aðstoð tölvupósts. Prósaverkið Hypoteser for to stemmer eftir Danina Morten Søndergaard & Tomas Thøfner var einnig unnið með hjálp tölvupóst, en þeir kynntust á netráðstefnu og hittust ekki fyrr en verkið var vel á veg komið.

Svonefndar "bloggbókmenntir" hafa nokkuð verið í umræðunni en það sem einna helst háir þessari tegund ritverka er að hið innbyggða eðli netmiðilsins færist illa yfir á pappir. Í bók er ekki hægt að tengja á milli vefsíðna en ef til vill leysist það með tilkomu svokallaðra rafbóka.

Frekara lesefni af Vísindavefnum:

Mynd:

Höfundur

Daði Ingólfsson

tölvunarfræðingur

Útgáfudagur

12.3.2003

Spyrjandi

Stefán Geirsson
Garðar Valur Hallfreðsson

Tilvísun

Daði Ingólfsson. „Hvað er blogg og hvaðan er það upprunnið?“ Vísindavefurinn, 12. mars 2003. Sótt 18. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=3225.

Daði Ingólfsson. (2003, 12. mars). Hvað er blogg og hvaðan er það upprunnið? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=3225

Daði Ingólfsson. „Hvað er blogg og hvaðan er það upprunnið?“ Vísindavefurinn. 12. mar. 2003. Vefsíða. 18. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=3225>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar