Sólin Sólin Rís 05:36 • sest 21:19 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 16:44 • Sest 05:50 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 04:37 • Síðdegis: 17:05 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 10:57 • Síðdegis: 23:09 í Reykjavík

Hvað hétu örlaganornirnar í norrænni goðafræði?

Eva Hrund Hlynsdóttir, Katrín Arndís Blomsterberg Magneudóttir og Helgi Kristjánsson


Örlaganornirnar þrjár, eða skapanornirnar, heita Urður, Verðandi og Skuld. Urður er norn fortíðar og elst af þeim öllum. Nafn hennar merkir "það sem orðið er". Verðandi, "hin líðandi stund", er norn nútímans og Skuld, "það sem skal gerast" (samstofna sögninni "að skulu"), er norn framtíðar.

Samkvæmt norrænni goðafræði spinna skapanornirnar mönnum örlög; þær spinna þræði fyrir hverja manneskju sem fæðist á jörðinni og ákvarða þannig allt lífshlaup hennar. Jafnvel æsirnir hafa sína eigin þræði en þeir fá hins vegar aldrei að sjá þá. Nornirnar geta líka séð framtíðina. Þær spáðu til að mynda fyrir um ragnarök, það er hvernig og hvenær heimurinn mun farast.

Skapanornirnar búa við Urðarbrunn í Ásgarði, en Urðarbrunnur stóð við eina af þremur rótum Asks Yggdrasils. Önnur rót er yfir Niflheimi og þar er viskulindin Mímisbrunnur. Þriðja rótin er í heimi hrímþursa. Örlaganornirnar vökva Ask Yggdrasils með hvítri leðju til að viðhalda lífskrafti hans.

Heimildir, mynd og frekara lesefni:


Þetta svar er eftir nemendur í Háskóla unga fólksins, námskeiðum á vegum HÍ fyrir 12-16 ára ungmenni í júnímánuði 2005.

Höfundar

nemandi í Kópavogsskóla

nemandi í Háskóla unga fólksins

nemandi í Hlíðaskóla

Útgáfudagur

11.7.2005

Spyrjandi

Sigurrós Rúnarsdóttir, f. 1991

Tilvísun

Eva Hrund Hlynsdóttir, Katrín Arndís Blomsterberg Magneudóttir og Helgi Kristjánsson. „Hvað hétu örlaganornirnar í norrænni goðafræði?“ Vísindavefurinn, 11. júlí 2005. Sótt 20. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=5124.

Eva Hrund Hlynsdóttir, Katrín Arndís Blomsterberg Magneudóttir og Helgi Kristjánsson. (2005, 11. júlí). Hvað hétu örlaganornirnar í norrænni goðafræði? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=5124

Eva Hrund Hlynsdóttir, Katrín Arndís Blomsterberg Magneudóttir og Helgi Kristjánsson. „Hvað hétu örlaganornirnar í norrænni goðafræði?“ Vísindavefurinn. 11. júl. 2005. Vefsíða. 20. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=5124>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

=

Hvað hétu örlaganornirnar í norrænni goðafræði?


Örlaganornirnar þrjár, eða skapanornirnar, heita Urður, Verðandi og Skuld. Urður er norn fortíðar og elst af þeim öllum. Nafn hennar merkir "það sem orðið er". Verðandi, "hin líðandi stund", er norn nútímans og Skuld, "það sem skal gerast" (samstofna sögninni "að skulu"), er norn framtíðar.

Samkvæmt norrænni goðafræði spinna skapanornirnar mönnum örlög; þær spinna þræði fyrir hverja manneskju sem fæðist á jörðinni og ákvarða þannig allt lífshlaup hennar. Jafnvel æsirnir hafa sína eigin þræði en þeir fá hins vegar aldrei að sjá þá. Nornirnar geta líka séð framtíðina. Þær spáðu til að mynda fyrir um ragnarök, það er hvernig og hvenær heimurinn mun farast.

Skapanornirnar búa við Urðarbrunn í Ásgarði, en Urðarbrunnur stóð við eina af þremur rótum Asks Yggdrasils. Önnur rót er yfir Niflheimi og þar er viskulindin Mímisbrunnur. Þriðja rótin er í heimi hrímþursa. Örlaganornirnar vökva Ask Yggdrasils með hvítri leðju til að viðhalda lífskrafti hans.

Heimildir, mynd og frekara lesefni:


Þetta svar er eftir nemendur í Háskóla unga fólksins, námskeiðum á vegum HÍ fyrir 12-16 ára ungmenni í júnímánuði 2005....