Sólin Sólin Rís 05:22 • sest 21:31 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 23:11 • Sest 05:11 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 06:38 • Síðdegis: 18:56 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 00:39 • Síðdegis: 12:46 í Reykjavík
Árnastofnun - mynd í *Árnarstofnun

Er rangt að byrja bréf til dæmis á 'Hafnarfjörður 1. maí 2000'? Ef svo er, þá hvers vegna?

Guðrún Kvaran

Fyrir því er löng hefð að staðarheiti, hvort sem það er bær, borg eða býli, stendur í þágufalli í upphafi bréfs, til dæmis Stykkishólmi, 3. nóvember, Stokkhólmi, 4. nóvember, Hóli, 5. nóvember.

Þetta þágufall er stundum nefnt staðarþágufall eftir latneskri málfræði (dativus loci; locus = staður). Þá er forsetningin í eða á undanskilin, það er (í) Stykkishólmi, (á) Hóli.

Höfundur

Guðrún Kvaran

prófessor

Útgáfudagur

18.10.2000

Spyrjandi

Guðríður Þórðardóttir

Tilvísun

Guðrún Kvaran. „Er rangt að byrja bréf til dæmis á 'Hafnarfjörður 1. maí 2000'? Ef svo er, þá hvers vegna?“ Vísindavefurinn, 18. október 2000. Sótt 24. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=1006.

Guðrún Kvaran. (2000, 18. október). Er rangt að byrja bréf til dæmis á 'Hafnarfjörður 1. maí 2000'? Ef svo er, þá hvers vegna? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=1006

Guðrún Kvaran. „Er rangt að byrja bréf til dæmis á 'Hafnarfjörður 1. maí 2000'? Ef svo er, þá hvers vegna?“ Vísindavefurinn. 18. okt. 2000. Vefsíða. 24. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=1006>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

=

Er rangt að byrja bréf til dæmis á 'Hafnarfjörður 1. maí 2000'? Ef svo er, þá hvers vegna?
Fyrir því er löng hefð að staðarheiti, hvort sem það er bær, borg eða býli, stendur í þágufalli í upphafi bréfs, til dæmis Stykkishólmi, 3. nóvember, Stokkhólmi, 4. nóvember, Hóli, 5. nóvember.

Þetta þágufall er stundum nefnt staðarþágufall eftir latneskri málfræði (dativus loci; locus = staður). Þá er forsetningin í eða á undanskilin, það er (í) Stykkishólmi, (á) Hóli....