Sólin Sólin Rís 05:19 • sest 21:35 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 25:18 • Sest 04:56 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 07:07 • Síðdegis: 19:24 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 01:08 • Síðdegis: 13:14 í Reykjavík
Árnastofnun - mynd í *Árnarstofnun

Hvað er það, þegar luntur er í einhverjum?

Guðrún Kvaran

Orðabók Háskólans hefur engin dæmi um orðið luntur en ef til vill er hér átt við nafnorðið lunti. Lunti getur merkt 'lasleiki, vesöld', t.d. „Það hefur verið hálfgerður lunti í mér upp á síðkastið.“ En lunti getur einnig merkt 'fýla' eða 'geðvonska'. Þá er t.d. sagt: „Það er hálfgerður lunti í krakkanum,“ og ræðst þá af samhengi hvað við er átt. Geðstirðan mann er líka hægt að kalla lunta. Orðið er líklegast tökuorð því að í lágþýsku er til sögnin luntern í merkingunni 'móka' og í hollensku merkir skylt orð, lenteren, 'vera slappur, móka'.

Höfundur

Guðrún Kvaran

prófessor

Útgáfudagur

24.10.2000

Spyrjandi

Georg Aspelund

Efnisorð

Tilvísun

Guðrún Kvaran. „Hvað er það, þegar luntur er í einhverjum?“ Vísindavefurinn, 24. október 2000. Sótt 25. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=1027.

Guðrún Kvaran. (2000, 24. október). Hvað er það, þegar luntur er í einhverjum? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=1027

Guðrún Kvaran. „Hvað er það, þegar luntur er í einhverjum?“ Vísindavefurinn. 24. okt. 2000. Vefsíða. 25. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=1027>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

...