Sólin Sólin Rís 05:43 • sest 21:13 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 13:37 • Sest 06:11 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 02:59 • Síðdegis: 15:47 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 09:39 • Síðdegis: 21:50 í Reykjavík
Árnastofnun - mynd í *Árnarstofnun

Stundum er sagt að einhver sé óprúttinn, en er þá líka hægt að vera prúttinn?

Guðrún Kvaran

Lýsingarorðið prúttinn hefur tvenns konar merkingu. Annars vegar er það notað um þann sem er hneigður til að prútta og hins vegar um þann sem er grandvar og er því vel hægt að vera prúttinn án þess að því fylgi niðrun. Í síðari merkingunni er orðið þó oftast haft með neitun, ekki prúttinn eða óprúttinn.

Hér gæti verið gott að vera prúttinn.

Eins og sjá má af fyrri merkingunni er lýsingarorðið skylt sögninni að prútta ‛þjarka um verð, þrefa’. Hún er til í málinu frá því á 18. öld og er tökuorð úr dönsku prutte í sömu merkingu.

Mynd:

Höfundur

Guðrún Kvaran

prófessor

Útgáfudagur

3.9.2010

Spyrjandi

Tyrfingur Kárason

Tilvísun

Guðrún Kvaran. „Stundum er sagt að einhver sé óprúttinn, en er þá líka hægt að vera prúttinn?“ Vísindavefurinn, 3. september 2010. Sótt 18. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=14675.

Guðrún Kvaran. (2010, 3. september). Stundum er sagt að einhver sé óprúttinn, en er þá líka hægt að vera prúttinn? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=14675

Guðrún Kvaran. „Stundum er sagt að einhver sé óprúttinn, en er þá líka hægt að vera prúttinn?“ Vísindavefurinn. 3. sep. 2010. Vefsíða. 18. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=14675>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

Mynd:...