Ásgeir Blöndal Magnússon telur í Íslenskri orðsifjabók (1989:881) að sögnin sé líklega einhvers konar hljóðgervingur en með því er átt við orð sem með hljóðum sínum líkir eftir náttúruhljóði eða -hljóðum. Hann segir hana því hugsanlega tengda sögninni skrapa ‛skafa, skrölta, gjögta’ og nafnorðinu skreppa í merkingunni ‛hrossabrestur’. Frekara lesefni af Vísindavefnum: Mynd:
- DV.is. Sótt 28.6.2010.