Sólin Sólin Rís 05:19 • sest 21:35 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 25:18 • Sest 04:56 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 07:07 • Síðdegis: 19:24 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 01:08 • Síðdegis: 13:14 í Reykjavík
Árnastofnun - mynd í *Árnarstofnun

Hvar á landinu er Helgafell?

Svavar Sigmundsson

Ein sjö Helgafell eru til í landinu:
  1. Suðaustur af Hafnarfirði, klettótt og bratt á flesta vegu.

  2. Í Mosfellssveit, fjall og bær.

  3. Á Þórsnesi á Snæfellsnesi, ávalt að sunnan og vestan en mjög þverhnípt að norðan og austan. Einnig samnefndur kirkjustaður.

  4. Hátt fjall yst sunnan Dýrafjarðar.

  5. Fell í Strandasýslu vestan Hrútafjarðar.

  6. Í Þistilfjarðarfjallgarði norðaustan Öxarfjarðarheiðar.

  7. Í Vestmannaeyjum.

Hugsanlega er nafnið tengt lögun þessara fjalla, en þau eru að minnsta kosti sum hver regluleg eða heilleg að útliti. Af einhverjum ástæðum var talin helgi á Helgafelli á Snæfellsnesi.

Orðið helgur er samandregin mynd úr heilagur, sem er skylt orðinu heill. Örnefni með Helga- að fyrra lið geta einnig verið dregin af mannsnafninu Helgi.

Höfundur

Svavar Sigmundsson

fyrrv. forstöðumaður Örnefnastofnunar

Útgáfudagur

29.6.2001

Spyrjandi

Þórunn Ísleifsdóttir

Efnisorð

Tilvísun

Svavar Sigmundsson. „Hvar á landinu er Helgafell?“ Vísindavefurinn, 29. júní 2001. Sótt 25. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=1756.

Svavar Sigmundsson. (2001, 29. júní). Hvar á landinu er Helgafell? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=1756

Svavar Sigmundsson. „Hvar á landinu er Helgafell?“ Vísindavefurinn. 29. jún. 2001. Vefsíða. 25. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=1756>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

...