Sólin Sólin Rís 09:55 • sest 17:29 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 23:31 • Sest 10:07 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 08:39 • Síðdegis: 21:01 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 02:29 • Síðdegis: 14:54 í Reykjavík

LeiðbeiningarTil baka

Sendu inn spurningu

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Er Lettland aðili að Evrópska efnahagssvæðinu?

Brynhildur Ingimarsdóttir

Aldarafmæli sjálfstæðis og fullveldis Íslands
Já, Lettland er aðili að Evrópska efnahagssvæðinu, eins og öll önnur aðildarríki Evrópusambandsins, og hefur verið það síðan það gekk í sambandið árið 2004. Lettland er meðal þeirra fyrrum Sovétríkja sem hafa leitað nánari tengsla við Vesturlönd eftir að hafa endurheimt sjálfstæðið sitt á ný í upphafi tíunda áratugar síðustu aldar.

***

Lettland er eitt af Eystrasaltslöndunum, ásamt Litháen og Eistlandi, sem glötuðu sjálfstæði sínu í upphafi seinni heimsstyrjaldarinnar þegar þau voru innlimuð í Sovétríkin. Rétt rúmri hálfri öld síðar lýsti Lettland, fyrst Eystrasaltsríkjanna, yfir sjálfstæði sínu gagnvart Sovétríkjunum og var Ísland fyrst ríkja til að viðurkenna sjálfstæði þess árið 1991.

Síðan þá hefur Lettland fengið aðild að ýmsum evrópskum milliríkjastofnunum til að mynda Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu (árið 1991) og Evrópuráðinu (árið 1995), en það gerðist einnig fullgildur aðili að Norður Atlantshafsbandalaginu (NATO) og Evrópusambandinu (ESB) árið 2004.

Íslandstorg vígt í Riga, höfuðborg Lettlands, í ágúst 2011. Minnismerkið er helgað því að Ísland var fyrst ríkja til að viðurkenna sjálfstæði Lettlands. Á myndinni sjást Girts Valdis Kristovskis þáverandi utanríkisráðherra Lettlands og Össur Skarphéðinsson núverandi utanríkisráðherra Íslands.

Sem aðili að Evrópusambandinu er Lettland jafnframt aðili að Evrópska efnahagssvæðinu sem er sameiginlegur innri markaður allra 27 aðildarríkja ESB og þriggja ríkja Fríverslunarsamtaka Evrópu (EFTA), það er Íslands, Liechtenstein og Noregs. Svæðinu var komið á fót með EES-samningnum sem tók formlega gildi 1. janúar 1994 og byggir á reglunum um fjórfrelsið, það er frjálsu flæði vöru, fólks, þjónustu og fjármagns. Nánar er fjallað um eðli samningsins um Evrópska efnahagssvæðið í svari við spurningunni Hvert er eðli EES-samningsins?

Lettland er þingbundið lýðveldi og byggir stjórnarfar landsins á þrískiptingu ríkisvaldsins þar sem framkvæmdavaldið er í höndum forseta og ríkisstjórnar.

Heimildir og mynd:

Höfundur

Brynhildur Ingimarsdóttir

alþjóðastjórnmálafræðingur og fyrrverandi verkefnastjóri á Evrópuvefnum

Útgáfudagur

22.6.2012

Síðast uppfært

4.2.2026

Spyrjandi

Ingvi Ingvason

Tilvísun

Brynhildur Ingimarsdóttir. „Er Lettland aðili að Evrópska efnahagssvæðinu?“ Vísindavefurinn, 22. júní 2012, sótt 5. febrúar 2026, https://visindavefur.is/svar.php?id=17635.

Brynhildur Ingimarsdóttir. (2012, 22. júní). Er Lettland aðili að Evrópska efnahagssvæðinu? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=17635

Brynhildur Ingimarsdóttir. „Er Lettland aðili að Evrópska efnahagssvæðinu?“ Vísindavefurinn. 22. jún. 2012. Vefsíða. 5. feb. 2026. <https://visindavefur.is/svar.php?id=17635>.

Chicago | APA | MLA

Senda grein til vinar

=

Er Lettland aðili að Evrópska efnahagssvæðinu?
Já, Lettland er aðili að Evrópska efnahagssvæðinu, eins og öll önnur aðildarríki Evrópusambandsins, og hefur verið það síðan það gekk í sambandið árið 2004. Lettland er meðal þeirra fyrrum Sovétríkja sem hafa leitað nánari tengsla við Vesturlönd eftir að hafa endurheimt sjálfstæðið sitt á ný í upphafi tíunda áratugar síðustu aldar.

***

Lettland er eitt af Eystrasaltslöndunum, ásamt Litháen og Eistlandi, sem glötuðu sjálfstæði sínu í upphafi seinni heimsstyrjaldarinnar þegar þau voru innlimuð í Sovétríkin. Rétt rúmri hálfri öld síðar lýsti Lettland, fyrst Eystrasaltsríkjanna, yfir sjálfstæði sínu gagnvart Sovétríkjunum og var Ísland fyrst ríkja til að viðurkenna sjálfstæði þess árið 1991.

Síðan þá hefur Lettland fengið aðild að ýmsum evrópskum milliríkjastofnunum til að mynda Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu (árið 1991) og Evrópuráðinu (árið 1995), en það gerðist einnig fullgildur aðili að Norður Atlantshafsbandalaginu (NATO) og Evrópusambandinu (ESB) árið 2004.

Íslandstorg vígt í Riga, höfuðborg Lettlands, í ágúst 2011. Minnismerkið er helgað því að Ísland var fyrst ríkja til að viðurkenna sjálfstæði Lettlands. Á myndinni sjást Girts Valdis Kristovskis þáverandi utanríkisráðherra Lettlands og Össur Skarphéðinsson núverandi utanríkisráðherra Íslands.

Íslandstorg vígt í Riga, höfuðborg Lettlands, í ágúst 2011. Minnismerkið er helgað því að Ísland var fyrst ríkja til að viðurkenna sjálfstæði Lettlands. Á myndinni sjást Girts Valdis Kristovskis þáverandi utanríkisráðherra Lettlands og Össur Skarphéðinsson núverandi utanríkisráðherra Íslands.

Sem aðili að Evrópusambandinu er Lettland jafnframt aðili að Evrópska efnahagssvæðinu sem er sameiginlegur innri markaður allra 27 aðildarríkja ESB og þriggja ríkja Fríverslunarsamtaka Evrópu (EFTA), það er Íslands, Liechtenstein og Noregs. Svæðinu var komið á fót með EES-samningnum sem tók formlega gildi 1. janúar 1994 og byggir á reglunum um fjórfrelsið, það er frjálsu flæði vöru, fólks, þjónustu og fjármagns. Nánar er fjallað um eðli samningsins um Evrópska efnahagssvæðið í svari við spurningunni Hvert er eðli EES-samningsins?

Lettland er þingbundið lýðveldi og byggir stjórnarfar landsins á þrískiptingu ríkisvaldsins þar sem framkvæmdavaldið er í höndum forseta og ríkisstjórnar.

Heimildir og mynd:...