Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!
Orðið snuð er leitt af sögninni snuða 'leika á, gabba, pretta' sem tekin var upp í íslensku á 18. öld úr dönsku snyde í sömu merkingu. Orðið snuð er innlend myndun og er ekki gamalt í málinu í þessari merkingu. Eldri er merkingin 'prettur, gabb' sem dæmi eru um að minnsta kosti frá því á fyrri hluta 19. aldar.
Áður fyrr var dúsa rétt að barni til að róa það en dúsan var tuska fyllt af tuggnum mat sem barnið gat tottað.