Sólin Sólin Rís 05:43 • sest 21:13 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 13:37 • Sest 06:11 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 02:59 • Síðdegis: 15:47 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 09:39 • Síðdegis: 21:50 í Reykjavík

Hver er stærsti api í heimi?

Jón Már Halldórsson

Stærsti api í heimi er górilluapinn Gorilla gorilla. Górilluapinn lifir í frumskógum Mið- Afríku nánar tiltekið í Kongó, sem hét áður Zaire, og í Rwanda og Úganda. Karldýrin vega venjulega um 200 kg og eru yfir 170 cm langir. Kvendýrin eru yfirleitt minni.

Dýrin verða yfirleitt þyngri ef þau búa í dýragörðum en ef þau lifa úti í villtri náttúrunni. enda þurfa þau lítið að hafa fyrir lífinu í dýragörðum. Til eru dæmi um það að górillur hafi orðið 250 kg í dýragörðum.

Framan af 20. öld var lítið vitað um vistfræði górilluapa. Breytingar urðu á því þegar bandaríski dýrafræðingurinn George B. Schaller gaf út bókina The Mountain Gorilla: Ecology and Behavior árið 1963 en hún var byggð á nokkurra ára rannsókn á ýmsum þáttum í líffræði górilluapa í fjöllum Rwanda.

Bandaríski dýrafræðingurinn Dian Fossey (1932-1985) hélt rannsóknum Schaller's áfram og hélt sig á svipuðum slóðum og hann eða í Virunga þjóðgarðinum. Rannsóknir hennar breyttu ýmsum víðteknum hugmyndum um górilluapa. Hún hélt því meðal annars fram að górilluapar væru í raun greindar, feimnar og ljúfar skepnur en ekki blóðþyrstar ófreskjur eins og þeim var gjarnan lýst í kvikmyndum eins og King Kong.

Dr. Fossey varð heimsfræg eftir að kvikmynd var gerð um reynslu hennar og líf meðal górilluapanna. Myndin var gerð fyrir hálfum öðrum áratug og hét Gorillas in the Mist og var með Signourey Waever í aðalhlutverki.

Górilluapar eru í mjög mikilli útrýmingarhættu í dag og í nokkrum stofnum eru einstaklingarnir ekki fleiri en nokkur hundruð.



Dian Fossey í góðum félagskap nokkurra górilluapa

í Virunga-þjóðgarðinum í Rwanda.

Mynd frá AllTheWeb

Höfundur

Jón Már Halldórsson

líffræðingur

Útgáfudagur

23.1.2002

Spyrjandi

Gunnar Sverrisson

Tilvísun

Jón Már Halldórsson. „Hver er stærsti api í heimi? “ Vísindavefurinn, 23. janúar 2002. Sótt 18. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=2066.

Jón Már Halldórsson. (2002, 23. janúar). Hver er stærsti api í heimi? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=2066

Jón Már Halldórsson. „Hver er stærsti api í heimi? “ Vísindavefurinn. 23. jan. 2002. Vefsíða. 18. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=2066>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

=

Hver er stærsti api í heimi?
Stærsti api í heimi er górilluapinn Gorilla gorilla. Górilluapinn lifir í frumskógum Mið- Afríku nánar tiltekið í Kongó, sem hét áður Zaire, og í Rwanda og Úganda. Karldýrin vega venjulega um 200 kg og eru yfir 170 cm langir. Kvendýrin eru yfirleitt minni.

Dýrin verða yfirleitt þyngri ef þau búa í dýragörðum en ef þau lifa úti í villtri náttúrunni. enda þurfa þau lítið að hafa fyrir lífinu í dýragörðum. Til eru dæmi um það að górillur hafi orðið 250 kg í dýragörðum.

Framan af 20. öld var lítið vitað um vistfræði górilluapa. Breytingar urðu á því þegar bandaríski dýrafræðingurinn George B. Schaller gaf út bókina The Mountain Gorilla: Ecology and Behavior árið 1963 en hún var byggð á nokkurra ára rannsókn á ýmsum þáttum í líffræði górilluapa í fjöllum Rwanda.

Bandaríski dýrafræðingurinn Dian Fossey (1932-1985) hélt rannsóknum Schaller's áfram og hélt sig á svipuðum slóðum og hann eða í Virunga þjóðgarðinum. Rannsóknir hennar breyttu ýmsum víðteknum hugmyndum um górilluapa. Hún hélt því meðal annars fram að górilluapar væru í raun greindar, feimnar og ljúfar skepnur en ekki blóðþyrstar ófreskjur eins og þeim var gjarnan lýst í kvikmyndum eins og King Kong.

Dr. Fossey varð heimsfræg eftir að kvikmynd var gerð um reynslu hennar og líf meðal górilluapanna. Myndin var gerð fyrir hálfum öðrum áratug og hét Gorillas in the Mist og var með Signourey Waever í aðalhlutverki.

Górilluapar eru í mjög mikilli útrýmingarhættu í dag og í nokkrum stofnum eru einstaklingarnir ekki fleiri en nokkur hundruð.



Dian Fossey í góðum félagskap nokkurra górilluapa

í Virunga-þjóðgarðinum í Rwanda.

Mynd frá AllTheWeb...