Sólin Sólin Rís 10:49 • sest 15:45 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 00:00 • Sest 00:00 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 06:52 • Síðdegis: 19:06 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 00:36 • Síðdegis: 13:09 í Reykjavík

LeiðbeiningarTil baka

Sendu inn spurningu

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Hvar í heiminum lifa tígrisdýr?

JMH

Útbreiðslukort tígrisdýra í heiminum í dag.

Núlifandi tígrisdýrum (Panthera tigris) er skipt í fimm deilitegundir sem allar lifa í austanverðri Asíu. Deilitegundirnar eru Bengaltígrisdýrið (Panthera tigris tigris), sem finnst aðallega á Indlandi en einnig að nokkru leyti í Nepal og Bútan og örfá dýr eru á afskekktu svæði í suðausturhluta Kína. Indókínverska tígrisdýrið (Panthera tigris corbetti) finnst á svæði sem kallað er Indókína eða þar sem nú eru Víetnam, Taíland, Malasía, Kambódía og Laos. Suður-kínverska tígrisdýrið (Panthera tigris amoyensis) finnst á afskekktu svæði í suðaustur Kína. Síberíutígrisdýrið (stundum kallað Ussuritígrisdýrið) (Panthera tigris altaica) sem er stærsta deilitegundin lifir í suðausturhluta Síberíu, Mansjúríu og á Kóreuskaganum. Súmötrutígrisdýrið (Panthera tigris sumatrae) lifir á eyjunni Súmötru í Indónesíu.

Myndin er fengin á vefsíðu dýragarðsins á Isle of Wight.

Skoðið einnig skyld svör:

Höfundur

Jón Már Halldórsson

líffræðingur

Útgáfudagur

18.7.2002

Spyrjandi

Sindri Þór

Tilvísun

JMH. „Hvar í heiminum lifa tígrisdýr?“ Vísindavefurinn, 18. júlí 2002, sótt 2. desember 2024, https://visindavefur.is/svar.php?id=2600.

JMH. (2002, 18. júlí). Hvar í heiminum lifa tígrisdýr? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=2600

JMH. „Hvar í heiminum lifa tígrisdýr?“ Vísindavefurinn. 18. júl. 2002. Vefsíða. 2. des. 2024. <https://visindavefur.is/svar.php?id=2600>.

Chicago | APA | MLA

Senda grein til vinar

=

Hvar í heiminum lifa tígrisdýr?

Útbreiðslukort tígrisdýra í heiminum í dag.

Núlifandi tígrisdýrum (Panthera tigris) er skipt í fimm deilitegundir sem allar lifa í austanverðri Asíu. Deilitegundirnar eru Bengaltígrisdýrið (Panthera tigris tigris), sem finnst aðallega á Indlandi en einnig að nokkru leyti í Nepal og Bútan og örfá dýr eru á afskekktu svæði í suðausturhluta Kína. Indókínverska tígrisdýrið (Panthera tigris corbetti) finnst á svæði sem kallað er Indókína eða þar sem nú eru Víetnam, Taíland, Malasía, Kambódía og Laos. Suður-kínverska tígrisdýrið (Panthera tigris amoyensis) finnst á afskekktu svæði í suðaustur Kína. Síberíutígrisdýrið (stundum kallað Ussuritígrisdýrið) (Panthera tigris altaica) sem er stærsta deilitegundin lifir í suðausturhluta Síberíu, Mansjúríu og á Kóreuskaganum. Súmötrutígrisdýrið (Panthera tigris sumatrae) lifir á eyjunni Súmötru í Indónesíu.

Myndin er fengin á vefsíðu dýragarðsins á Isle of Wight.

Skoðið einnig skyld svör:...