Sólin Sólin Rís 05:40 • sest 21:16 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 15:13 • Sest 05:59 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 03:57 • Síðdegis: 16:31 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 10:23 • Síðdegis: 22:34 í Reykjavík

Eru til tígrisdýr sem eru minni en ljón?

Jón Már Halldórsson

Minnstu tígrisdýrin (Panthera tigris) tilheyra deilitegundum sem lifa á eyjum Indónesíu. Af þessum deilitegundum er Súmötru-tígurinn sú eina sem er enn við lýði. Um 1970 dó Jövu-tígrisdýrið (Panthera tigris sondaica) út og Balí-tígrisdýrið (Panthera tigris balica) varð útdautt árið 1937.

Súmötru-tígrisdýrið vegur um 90-150 kg og er stærðarmunur kynjanna töluverður, líkt og meðal annarra kattardýra. Hinar indónesísku deilitegundirnar voru svipaðar að stærð, jafnvel aðeins minni. Þessi tígrisdýr eru talsvert minni en afrísku ljónin (Panthera leo spp.) sem vega frá 130 kg upp í rúm 200 kg. Karlljónin eru rúmlega 120 cm á herðakamb en indónesísku tígrisdýrin eru vel undir 80-90 cm.



Á Indlandi er deilitegund ljóna sem nefnist á fræðimáli Panthera leo persica. Hún hefur verið í mikilli útrýmingarhættu í rúma öld og lifir á afmörkuðu svæði í vestanverðu Indlandi, nánar tiltekið í Girskógi. Strangt til getið er ekki um smágerða tegund að ræða, en ljónin í Girskógi eru eitthvað minni en frændur þeirra í Afríku.



Myndirnar eru fengnar af vefsetrunum

Höfundur

Jón Már Halldórsson

líffræðingur

Útgáfudagur

3.9.2002

Spyrjandi

Rúnar Guðjónsson

Tilvísun

Jón Már Halldórsson. „Eru til tígrisdýr sem eru minni en ljón?“ Vísindavefurinn, 3. september 2002. Sótt 19. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=2680.

Jón Már Halldórsson. (2002, 3. september). Eru til tígrisdýr sem eru minni en ljón? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=2680

Jón Már Halldórsson. „Eru til tígrisdýr sem eru minni en ljón?“ Vísindavefurinn. 3. sep. 2002. Vefsíða. 19. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=2680>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

=

Eru til tígrisdýr sem eru minni en ljón?
Minnstu tígrisdýrin (Panthera tigris) tilheyra deilitegundum sem lifa á eyjum Indónesíu. Af þessum deilitegundum er Súmötru-tígurinn sú eina sem er enn við lýði. Um 1970 dó Jövu-tígrisdýrið (Panthera tigris sondaica) út og Balí-tígrisdýrið (Panthera tigris balica) varð útdautt árið 1937.

Súmötru-tígrisdýrið vegur um 90-150 kg og er stærðarmunur kynjanna töluverður, líkt og meðal annarra kattardýra. Hinar indónesísku deilitegundirnar voru svipaðar að stærð, jafnvel aðeins minni. Þessi tígrisdýr eru talsvert minni en afrísku ljónin (Panthera leo spp.) sem vega frá 130 kg upp í rúm 200 kg. Karlljónin eru rúmlega 120 cm á herðakamb en indónesísku tígrisdýrin eru vel undir 80-90 cm.



Á Indlandi er deilitegund ljóna sem nefnist á fræðimáli Panthera leo persica. Hún hefur verið í mikilli útrýmingarhættu í rúma öld og lifir á afmörkuðu svæði í vestanverðu Indlandi, nánar tiltekið í Girskógi. Strangt til getið er ekki um smágerða tegund að ræða, en ljónin í Girskógi eru eitthvað minni en frændur þeirra í Afríku.



Myndirnar eru fengnar af vefsetrunum...