Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!
Símnefni var stytt nafn eða sérstök nafnmynd fyrirtækis notuð til sparnaðar í símskeytum. Greiða þurfti fyrir hvert orð og kom sér þá vel að geta notað styttinguna. Í Ritmálsskrá Orðabókar Háskólans er til dæmis þetta dæmi úr tímaritinu Ægi frá 1914:
Símnefni Jakobs Gunnlögssonar í Khöfn er: Starfsemi, Köbenhavn.
Annað dæmi úr Ritmálsskránni sýnir að Efnalaug Reykjavíkur, sem var við Laugaveg 30 og hafði símann 1300, notaði símnefnið Efnalaug. Talsvert sparaðist en skeyti komust á réttan stað.
Símnefni úr Sjómannablaðinu Víkingur frá árinu 1949.
Guðrún Kvaran. „Ég var að grúska í gamalli símaskrá frá 1941 og þar er mikið talað um símnefni, hvað er það?“ Vísindavefurinn, 21. október 2010, sótt 14. nóvember 2024, https://visindavefur.is/svar.php?id=31018.
Guðrún Kvaran. (2010, 21. október). Ég var að grúska í gamalli símaskrá frá 1941 og þar er mikið talað um símnefni, hvað er það? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=31018
Guðrún Kvaran. „Ég var að grúska í gamalli símaskrá frá 1941 og þar er mikið talað um símnefni, hvað er það?“ Vísindavefurinn. 21. okt. 2010. Vefsíða. 14. nóv. 2024. <https://visindavefur.is/svar.php?id=31018>.