Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!
Orðið pylsa er tökuorð í íslensku, líklegast úr dönsku pølse. Í nýnorsku og færeysku þekkist myndin pylsa, í sænsku pölsa og í sænskum mállýskum pylsa. Það þekkist í málinu frá því á 17. öld. Miðað við uppruna er rétt að skrifa pylsa með -y- en orðmyndin pulsa er framburðarmynd, hugsanlega fyrir áhrif frá dönsku.
Guðrún Kvaran. „Hvort er réttara að segja og rita pylsa eða pulsa?“ Vísindavefurinn, 23. apríl 2003, sótt 13. desember 2024, https://visindavefur.is/svar.php?id=3355.
Guðrún Kvaran. (2003, 23. apríl). Hvort er réttara að segja og rita pylsa eða pulsa? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=3355
Guðrún Kvaran. „Hvort er réttara að segja og rita pylsa eða pulsa?“ Vísindavefurinn. 23. apr. 2003. Vefsíða. 13. des. 2024. <https://visindavefur.is/svar.php?id=3355>.