Sólin Sólin Rís 05:12 • sest 21:41 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 00:00 • Sest 00:00 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 08:09 • Síðdegis: 20:27 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 02:12 • Síðdegis: 14:14 í Reykjavík

Hvaðan er orðið rasismi komið?

Þorsteinn Vilhjálmsson

Orðið 'rasismi' er tökuorð og margir nota í staðinn til dæmis orðið kynþáttahyggja, að minnsta kosti þegar það á við. Rasisminn er hliðstæður tökuorðinu 'rasi' sem er yfirleitt þýtt sem kynþáttur.

Tökuorðin eru upphaflega komin úr dönsku: 'race' (framborið 'rase') og 'racist' (frb. 'rasist). Margir munu nú á dögum tengja orðin við ensku 'race' (frb. 'reis') og 'racist' (frb. 'reisist'). Í þýsku er talað um 'Rasse' og 'Rassismus'.

Rasisminn er hliðstæður tökuorðinu 'rasi' sem er yfirleitt þýtt sem kynþáttur.

Þessi orð eru talin vera komin úr ítölsku 'razza', 'razzismo', samanber líka spænsku 'raza'. Þaðan má rekja þau til arabíska orðsins ra's, 'höfuð, uppruni'.

Heimildir:
  • Ásgeir Blöndal Magnússon, 1989. Íslensk orðsifjabók. Reykjavík: Orðabók Háskólans.
  • Lis Jacobsen o.fl. (ritstj.), 1957. Nudansk ordbog. Kaupmannahöfn: Politiken.

Mynd:

Höfundur

Þorsteinn Vilhjálmsson

prófessor emeritus, ritstjóri Vísindavefsins 2000-2010 og ritstjóri Evrópuvefsins 2011

Útgáfudagur

7.5.2004

Spyrjandi

Ingimar Einarsson

Tilvísun

Þorsteinn Vilhjálmsson. „Hvaðan er orðið rasismi komið?“ Vísindavefurinn, 7. maí 2004. Sótt 27. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=4244.

Þorsteinn Vilhjálmsson. (2004, 7. maí). Hvaðan er orðið rasismi komið? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=4244

Þorsteinn Vilhjálmsson. „Hvaðan er orðið rasismi komið?“ Vísindavefurinn. 7. maí. 2004. Vefsíða. 27. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=4244>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

Mynd:...