Sólin Sólin Rís 05:40 • sest 21:16 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 15:13 • Sest 05:59 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 03:57 • Síðdegis: 16:31 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 10:23 • Síðdegis: 22:34 í Reykjavík
Árnastofnun - mynd í *Árnarstofnun

Hvað þýðir „að láta einhvern finna til tevatnsins“?

Guðrún Kvaran

Orðasambandið að láta einhvern finna til tevatnsins er notað um að ná sér niðri á einhverjum. Einnig er talað um að láta einhvern fá til tevatnsins eða að láta einhvern fá tevatnið sykurlaust.

Orðið tevatn er komið í málið úr dönsku, tevand, og á Orðabók Háskólans dæmi um það allt frá 18. öld. Orðasamböndin eru mun yngri eða frá því á fyrri hluta 20. aldar.

Í íslensk-danskri orðabók Sigfúsar Blöndals (1920-1924) er sambandið að fá til tevatnsins merkt með spurningarmerki sem vísar til þess að Sigfús hefur litið á það sem orðasamband sem ætti sér erlendar rætur og því óæskilegt í málinu. Danska skýringin hjá honum er „faa til teen“.

Höfundur

Guðrún Kvaran

prófessor

Útgáfudagur

25.5.2004

Spyrjandi

Þórhallur Þórhallsson

Efnisorð

Tilvísun

Guðrún Kvaran. „Hvað þýðir „að láta einhvern finna til tevatnsins“?“ Vísindavefurinn, 25. maí 2004. Sótt 19. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=4276.

Guðrún Kvaran. (2004, 25. maí). Hvað þýðir „að láta einhvern finna til tevatnsins“? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=4276

Guðrún Kvaran. „Hvað þýðir „að láta einhvern finna til tevatnsins“?“ Vísindavefurinn. 25. maí. 2004. Vefsíða. 19. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=4276>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

=

Hvað þýðir „að láta einhvern finna til tevatnsins“?
Orðasambandið að láta einhvern finna til tevatnsins er notað um að ná sér niðri á einhverjum. Einnig er talað um að láta einhvern fá til tevatnsins eða að láta einhvern fá tevatnið sykurlaust.

Orðið tevatn er komið í málið úr dönsku, tevand, og á Orðabók Háskólans dæmi um það allt frá 18. öld. Orðasamböndin eru mun yngri eða frá því á fyrri hluta 20. aldar.

Í íslensk-danskri orðabók Sigfúsar Blöndals (1920-1924) er sambandið að fá til tevatnsins merkt með spurningarmerki sem vísar til þess að Sigfús hefur litið á það sem orðasamband sem ætti sér erlendar rætur og því óæskilegt í málinu. Danska skýringin hjá honum er „faa til teen“....