Sólin Sólin Rís 05:15 • sest 21:38 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 01:18 • Sest 04:30 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 07:36 • Síðdegis: 19:53 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 01:39 • Síðdegis: 13:42 í Reykjavík

Hvað veldur baugum undir augum og hvernig losnar maður við þá?

Þuríður Þorbjarnardóttir

Þegar talað er um bauga undir augum er oftast átt við dökka hringi undir augunum, en stundum líkjast þessir baugar þó meira pokum.

Ýmsar orsakir geta verið fyrir baugum undir augunum. Ein ástæðan eru þunn augnlok en slíkt getur haft í för með sér að æðar verða meira áberandi, sem gerir neðri augnlokin dekkri. Þunn augnlok ganga í erfðir en með aldrinum þynnist einnig húðin sem þekur augnlokin.

Baugar geta einnig stafað af því að neðri augnlokin þrútna. Þegar legið er, einkum á grúfu, veldur þyngdarkrafturinn því að vökvi safnast fyrir í neðri augnlokunum og þá geta myndast dökkir hringir undir augunum.

Ef baugarnir eru pokar fremur en hringir má rekja það til vökvasöfnunar í lausri húð eða fituútfellingum en vökvi safnast fyrir í líkaminn ef maður borðar saltan mat eða er þreyttur.

Oftast eru pokar eða dökkir hringir undir augunum arfgengir. Pokarnir virðast verri hjá þeim sem eru með ofnæmi eða reykja. Nauðsynlegt er að sýna varkárni gagnvart snyrti- eða húðvörum sem á að bera á andlitið eða nálægt augunum. Sumir eru til dæmis með ofnæmi fyrir litarefni í svörtum maskara.



Til þess að losna við bauga eða poka undir augum er mikilvægt að fá nægan svefn, varast sterkt sólarljós, forðast mikla saltneyslu og streitu og hætta að reykja ef viðkomandi reykir. Þessi ráð eru ekki eingöngu góð fyrir augun heldur heilsuna almennt.

Einnig getur verið gott að setja kalda bakstra á augun, til dæmis að dýfa bómullarhnoðra í fíkjusafa, rósavatn eða kalda mjólk, leggjast niður með hærra undur fótum en höfuði, setja hnoðrana á lokuð augun og liggja kyrr í 10 mínútur. Sömuleiðis mætti nota gúrkusneiðar eða hráar kartöflusneiðar á sama hátt eða nudda varlega saffran- eða möndluolíu á augnsvæðið fyrir svefninn.

Sért þú sá eini í ætt þinni sem er með poka undir augunum eru erfðir líklega ekki ástæða þeirra. Þá gæti borgað sig að ráðfæra sig við lækni til að komast að öðrum mögulegum orsökum. Það gæti jafnvel verið ráðlegt að leita til ónæmissérfræðings sem finnur ofnæmisvald ef hann er fyrir hendi og ráðleggur þá meðferð.

Hvort sem þú hefur erft bauga eða poka undir augun eða þjáist bara af þreytu er oftast hægt að fela baugana með viðeigandi snyrtivörum. Þó ber að fara varlega í því efni ef um ofnæmi er að ræða.

Heimildir, mynd og frekari fróðleikur:

Höfundur

Útgáfudagur

14.12.2004

Spyrjandi

Albert Hannesson

Tilvísun

Þuríður Þorbjarnardóttir. „Hvað veldur baugum undir augum og hvernig losnar maður við þá? “ Vísindavefurinn, 14. desember 2004. Sótt 26. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=4661.

Þuríður Þorbjarnardóttir. (2004, 14. desember). Hvað veldur baugum undir augum og hvernig losnar maður við þá? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=4661

Þuríður Þorbjarnardóttir. „Hvað veldur baugum undir augum og hvernig losnar maður við þá? “ Vísindavefurinn. 14. des. 2004. Vefsíða. 26. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=4661>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

=

Hvað veldur baugum undir augum og hvernig losnar maður við þá?
Þegar talað er um bauga undir augum er oftast átt við dökka hringi undir augunum, en stundum líkjast þessir baugar þó meira pokum.

Ýmsar orsakir geta verið fyrir baugum undir augunum. Ein ástæðan eru þunn augnlok en slíkt getur haft í för með sér að æðar verða meira áberandi, sem gerir neðri augnlokin dekkri. Þunn augnlok ganga í erfðir en með aldrinum þynnist einnig húðin sem þekur augnlokin.

Baugar geta einnig stafað af því að neðri augnlokin þrútna. Þegar legið er, einkum á grúfu, veldur þyngdarkrafturinn því að vökvi safnast fyrir í neðri augnlokunum og þá geta myndast dökkir hringir undir augunum.

Ef baugarnir eru pokar fremur en hringir má rekja það til vökvasöfnunar í lausri húð eða fituútfellingum en vökvi safnast fyrir í líkaminn ef maður borðar saltan mat eða er þreyttur.

Oftast eru pokar eða dökkir hringir undir augunum arfgengir. Pokarnir virðast verri hjá þeim sem eru með ofnæmi eða reykja. Nauðsynlegt er að sýna varkárni gagnvart snyrti- eða húðvörum sem á að bera á andlitið eða nálægt augunum. Sumir eru til dæmis með ofnæmi fyrir litarefni í svörtum maskara.



Til þess að losna við bauga eða poka undir augum er mikilvægt að fá nægan svefn, varast sterkt sólarljós, forðast mikla saltneyslu og streitu og hætta að reykja ef viðkomandi reykir. Þessi ráð eru ekki eingöngu góð fyrir augun heldur heilsuna almennt.

Einnig getur verið gott að setja kalda bakstra á augun, til dæmis að dýfa bómullarhnoðra í fíkjusafa, rósavatn eða kalda mjólk, leggjast niður með hærra undur fótum en höfuði, setja hnoðrana á lokuð augun og liggja kyrr í 10 mínútur. Sömuleiðis mætti nota gúrkusneiðar eða hráar kartöflusneiðar á sama hátt eða nudda varlega saffran- eða möndluolíu á augnsvæðið fyrir svefninn.

Sért þú sá eini í ætt þinni sem er með poka undir augunum eru erfðir líklega ekki ástæða þeirra. Þá gæti borgað sig að ráðfæra sig við lækni til að komast að öðrum mögulegum orsökum. Það gæti jafnvel verið ráðlegt að leita til ónæmissérfræðings sem finnur ofnæmisvald ef hann er fyrir hendi og ráðleggur þá meðferð.

Hvort sem þú hefur erft bauga eða poka undir augun eða þjáist bara af þreytu er oftast hægt að fela baugana með viðeigandi snyrtivörum. Þó ber að fara varlega í því efni ef um ofnæmi er að ræða.

Heimildir, mynd og frekari fróðleikur:...