Sólin Sólin Rís 05:22 • sest 21:31 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 23:11 • Sest 05:11 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 06:38 • Síðdegis: 18:56 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 00:39 • Síðdegis: 12:46 í Reykjavík
Árnastofnun - mynd í *Árnarstofnun

Af hverju heitir fjallið Tindastóll þessu nafni?

Svavar Sigmundsson

Ekki er alveg ljóst hvaðan nafnið á fjallinu Tindastól í Skagafirði (995 m) norðan við Sauðárkrók er komið. Hár strýtumyndaður klettur í landi Alviðru í Ölfusi heitir líka Tindastóll. Orðið stóll er í öðrum fjallsnöfnum eins og Stóll sem er á milli Svarfaðardals og Skíðadals í Eyjafirði.


Sauðárkrókur og Tindastóll í baksýn.

Í Noregi má finna örnefnið Stol eða Stolen á hæðum eða fjöllum, til dæmis Stolen (1392 m) á Mæri og Raumsdal, eða sem nafn á stalli eða rák í hlíð eða fjalli og minnir þá á sess eða sæti (Norsk stadmnamnleksikon (1976), bls. 299).

Mynd: Mats: Íslandsmyndasafn © Mats Wibe Lund

Höfundur

Svavar Sigmundsson

fyrrv. forstöðumaður Örnefnastofnunar

Útgáfudagur

15.4.2005

Spyrjandi

Hafsteinn Ágústsson, f. 1995

Tilvísun

Svavar Sigmundsson. „Af hverju heitir fjallið Tindastóll þessu nafni?“ Vísindavefurinn, 15. apríl 2005. Sótt 24. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=4887.

Svavar Sigmundsson. (2005, 15. apríl). Af hverju heitir fjallið Tindastóll þessu nafni? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=4887

Svavar Sigmundsson. „Af hverju heitir fjallið Tindastóll þessu nafni?“ Vísindavefurinn. 15. apr. 2005. Vefsíða. 24. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=4887>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

=

Af hverju heitir fjallið Tindastóll þessu nafni?
Ekki er alveg ljóst hvaðan nafnið á fjallinu Tindastól í Skagafirði (995 m) norðan við Sauðárkrók er komið. Hár strýtumyndaður klettur í landi Alviðru í Ölfusi heitir líka Tindastóll. Orðið stóll er í öðrum fjallsnöfnum eins og Stóll sem er á milli Svarfaðardals og Skíðadals í Eyjafirði.


Sauðárkrókur og Tindastóll í baksýn.

Í Noregi má finna örnefnið Stol eða Stolen á hæðum eða fjöllum, til dæmis Stolen (1392 m) á Mæri og Raumsdal, eða sem nafn á stalli eða rák í hlíð eða fjalli og minnir þá á sess eða sæti (Norsk stadmnamnleksikon (1976), bls. 299).

Mynd: Mats: Íslandsmyndasafn © Mats Wibe Lund...