Sólin Sólin Rís 05:40 • sest 21:16 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 15:13 • Sest 05:59 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 03:57 • Síðdegis: 16:31 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 10:23 • Síðdegis: 22:34 í Reykjavík

Hvað eru margir gígar á tunglinu?

HMH

Gögn sem safnað hefur verið bæði í mönnuðum og ómönnuðum tunglferðum gefa til kynna að gígar á yfirborði tunglsins, yfir einn metri í þvermál, nemi þremur billjónum að tölu (3.000.000.000.000).

Stærstu gígar tunglsins nema hundruðum kílómetra að þvermáli. Flestir gígarnir hafa orðið til við árekstur loftsteina við tunglið, aðrir kunna að vera til komnir af eldvirkni en það er þó óvíst.

Myndin sem fylgir svarinu sýnir þá hlið mánans sem snýr að jörðu. Hún er í eigu geimferðastofnunar Bandaríkjanna (NASA photo # PIA00405).

Helsta heimild: Britannica.com.

Höfundur

heimspekingur og fyrrverandi starfsmaður Vísindavefsins

Útgáfudagur

8.6.2000

Spyrjandi

Arnar Jan Jónsson

Efnisorð

Tilvísun

HMH. „Hvað eru margir gígar á tunglinu?“ Vísindavefurinn, 8. júní 2000. Sótt 19. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=500.

HMH. (2000, 8. júní). Hvað eru margir gígar á tunglinu? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=500

HMH. „Hvað eru margir gígar á tunglinu?“ Vísindavefurinn. 8. jún. 2000. Vefsíða. 19. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=500>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

...