Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!
Orðið róða hefur fleiri en eina merkingu. Í eldra máli var það notað sem samheiti yfir róðukross en það var einnig notað um kross almennt. Orðið merkir einnig ‘dýrlingsmynd’. Karlkynsmyndin róði merkti í eldra máli annars vegar ‘kross’ og hins vegar ‘dýrlingsmynd’.
Róðukross hefur einnig fleiri en eina merkingu. Orðið er notað um krossmark og kross með Kristsmynd á, en einnig um sérstakt galdramerki eins og sést hér á myndinni til hliðar.
Róða er sama orð og í ensku rood ‘róðukross’ og Rute í þýsku ‘stafur, stöng’.
Mynd:
Guðrún Kvaran. „Hvers konar róða er í orðinu róðukross?“ Vísindavefurinn, 13. mars 2009, sótt 14. nóvember 2025, https://visindavefur.is/svar.php?id=51486.
Guðrún Kvaran. (2009, 13. mars). Hvers konar róða er í orðinu róðukross? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=51486
Guðrún Kvaran. „Hvers konar róða er í orðinu róðukross?“ Vísindavefurinn. 13. mar. 2009. Vefsíða. 14. nóv. 2025. <https://visindavefur.is/svar.php?id=51486>.