Sólin Sólin Rís 04:20 • sest 22:46 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 22:56 • Sest 14:35 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 10:51 • Síðdegis: 23:16 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 04:39 • Síðdegis: 16:58 í Reykjavík

LeiðbeiningarTil baka

Sendu inn spurningu

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Hver er þessi hvippur og hvappur sem menn fara stundum út um?

Guðrún Kvaran

Árnastofnun - mynd í *Árnarstofnun
Orðið hvippur merkir ‘duttlungur, einkennilegt uppátæki’ í orðasambandinu úti um hvippinn og hvappinn. Það er skylt lýsingarorðinu hvippinn ‘fælinn, viðbrigðinn’ og hvorugkynsorðinu hvippi ‘smálaut, grösugur engjablettur’. Orðið hvappur merkir ‘lægð, dalverpi’. Það er notað með hvippur í sambandinu úti um hvippinn og hvappinn í merkingunni ‘hér og þar, úti um allt’, til dæmis ,,Hann var alltaf úti um hvippinn og hvappinn“.

Orðasambandið úti um hvippinn og hvappinn merkir 'hér og þar, úti um allt'.

Hvippur er einnig notað í sambandinu vera eins og hvippur í kopp ‘vera óstöðugur, illa treystandi’ og sama er að segja um hvippi. Það er einnig notað í sambandinu vera eins og hvippi í kopp ‘vera óstöðugur’ og vera eins og hvippi í hvers manns koppi ‘skipta sér af öllu’. Merkingarlega er líklegt er að hvippi hafi lagað sig að hvappur í orðasambandinu og það orðið úti um hvippinn og hvappinn í stað úti um hvippið og hvappinn.

Ýmis fleiri orðasambönd eru notuð í sömu merkingu og úti um hvippinn og hvappinn. Þar má nefna: úti um trintur og tranta, úti um trissur og tranta, úti um trintinn og trantinn, úti um dittinn og dattinn, úti um tær og trissur og úti um (allar) þorpagrundir.

Frekara lesefni á Vísindavefnum:

Mynd:

Höfundur

Guðrún Kvaran

prófessor

Útgáfudagur

18.3.2009

Spyrjandi

Leifur Sigurðsson

Tilvísun

Guðrún Kvaran. „Hver er þessi hvippur og hvappur sem menn fara stundum út um?“ Vísindavefurinn, 18. mars 2009, sótt 27. júlí 2024, https://visindavefur.is/svar.php?id=51794.

Guðrún Kvaran. (2009, 18. mars). Hver er þessi hvippur og hvappur sem menn fara stundum út um? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=51794

Guðrún Kvaran. „Hver er þessi hvippur og hvappur sem menn fara stundum út um?“ Vísindavefurinn. 18. mar. 2009. Vefsíða. 27. júl. 2024. <https://visindavefur.is/svar.php?id=51794>.

Chicago | APA | MLA

Senda grein til vinar