Sólin Sólin Rís 05:40 • sest 21:16 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 15:13 • Sest 05:59 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 03:57 • Síðdegis: 16:31 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 10:23 • Síðdegis: 22:34 í Reykjavík
Árnastofnun - mynd í *Árnarstofnun

Hvaðan kemur orðið "renta", þegar talað er um að e-ð beri nafn með rentu?

Guðrún Kvaran

Orðið renta er notað um vexti eða ávöxtun á fjármunum eða öðrum verðmætum. Það er tökuorð úr dönsku rente í sömu merkingu frá 16. öld.

Orðatiltækið að bera nafn með rentu merkir að 'heita eitthvað með réttu, standa undir nafni sínu'. Það er til í fleiri en einni gerð. Hin elsta í safni Orðabókar Háskólans er að láta nafni fylgja rentu og er frá miðri 17. öld. Aðeins yngra er dæmið um nafnið tómt fyrir utan rentu. Að bera nafn með rentu þekkist frá lokum 18. aldar og stundum er talað um að eiga nafn með rentu.

Renta er líka notað í orðasambandinu að fá eitthvað með rentu eða rentum. Það er yfirleitt notað í neikvæðri merkingu um að fá eitthvað endurgoldið sem einhver telur sig eiga inni (svik, pretti, barsmíð eða annað í þá veru) og meira en það.

Höfundur

Guðrún Kvaran

prófessor

Útgáfudagur

30.8.2005

Spyrjandi

Magnús Sigurðsson, f. 1989

Efnisorð

Tilvísun

Guðrún Kvaran. „Hvaðan kemur orðið "renta", þegar talað er um að e-ð beri nafn með rentu?“ Vísindavefurinn, 30. ágúst 2005. Sótt 19. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=5230.

Guðrún Kvaran. (2005, 30. ágúst). Hvaðan kemur orðið "renta", þegar talað er um að e-ð beri nafn með rentu? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=5230

Guðrún Kvaran. „Hvaðan kemur orðið "renta", þegar talað er um að e-ð beri nafn með rentu?“ Vísindavefurinn. 30. ágú. 2005. Vefsíða. 19. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=5230>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

=

Hvaðan kemur orðið "renta", þegar talað er um að e-ð beri nafn með rentu?
Orðið renta er notað um vexti eða ávöxtun á fjármunum eða öðrum verðmætum. Það er tökuorð úr dönsku rente í sömu merkingu frá 16. öld.

Orðatiltækið að bera nafn með rentu merkir að 'heita eitthvað með réttu, standa undir nafni sínu'. Það er til í fleiri en einni gerð. Hin elsta í safni Orðabókar Háskólans er að láta nafni fylgja rentu og er frá miðri 17. öld. Aðeins yngra er dæmið um nafnið tómt fyrir utan rentu. Að bera nafn með rentu þekkist frá lokum 18. aldar og stundum er talað um að eiga nafn með rentu.

Renta er líka notað í orðasambandinu að fá eitthvað með rentu eða rentum. Það er yfirleitt notað í neikvæðri merkingu um að fá eitthvað endurgoldið sem einhver telur sig eiga inni (svik, pretti, barsmíð eða annað í þá veru) og meira en það....