Sólin Sólin Rís 05:36 • sest 21:19 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 16:44 • Sest 05:50 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 04:37 • Síðdegis: 17:05 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 10:57 • Síðdegis: 23:09 í Reykjavík
Árnastofnun - mynd í *Árnarstofnun

Við vinirnir erum að deila um hvort eigi að segja 'margur telur mig sig' eða 'margur telur sig mig'? Hvort er réttara?

Guðrún Kvaran

Orðasambandið sem spurt er um er margur hyggur (telur, álítur) mig sig. Hugmyndin að baki er að margur maðurinn hyggur að aðrir séu eins og hann sjálfur. Það er oftast notað í háði og í neikvæðri merkingu. Sá sem tekur svo til orða er þá oftast að hæðast að öðrum manni með því að gefa í skyn að hann telji sig standa jafnfætis þeim sem hann miðar sig við en geri það alls ekki.

Deilt um það hvort eigi að segja 'margur telur mig sig' eða margur telur sig mig'

Upprunalega spurningin var svona:
Ég vil meina að það sé réttara að segja "margur telur mig sig" en vinur minn segir að hið rétta sé: "margur telur sig mig". Mér finnst það ekki passa, það sem hann segir. Hvort er réttara?

Mynd:

Höfundur

Guðrún Kvaran

prófessor

Útgáfudagur

10.9.2009

Spyrjandi

Birkir Örn Gylfason

Tilvísun

Guðrún Kvaran. „Við vinirnir erum að deila um hvort eigi að segja 'margur telur mig sig' eða 'margur telur sig mig'? Hvort er réttara?“ Vísindavefurinn, 10. september 2009. Sótt 20. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=52944.

Guðrún Kvaran. (2009, 10. september). Við vinirnir erum að deila um hvort eigi að segja 'margur telur mig sig' eða 'margur telur sig mig'? Hvort er réttara? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=52944

Guðrún Kvaran. „Við vinirnir erum að deila um hvort eigi að segja 'margur telur mig sig' eða 'margur telur sig mig'? Hvort er réttara?“ Vísindavefurinn. 10. sep. 2009. Vefsíða. 20. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=52944>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

Mynd:...