Sólin Sólin Rís 04:20 • sest 22:46 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 22:56 • Sest 14:35 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 10:51 • Síðdegis: 23:16 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 04:39 • Síðdegis: 16:58 í Reykjavík

LeiðbeiningarTil baka

Sendu inn spurningu

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Hvert er samheiti orðsins 'samheiti'?

Guðrún Kvaran

Árnastofnun - mynd í *Árnarstofnun
Orðið samheiti er í íslensku notað í sömu merkingu og erlenda orðið 'synonym', það er um orð sem hafa sömu eða næstum sömu merkingu eins og bifreið og bíll, fótbolti og knattspyrna. Mér er ekki kunnugt um að notað sé annað orð um þetta.

Sumir rugla saman orðunum samheiti og samyrði. Samyrði er notað um það sem á erlendum málum kallast homonym, það er tvö orð eru skrifuð og borin fram á sama hátt. Sem dæmi mætti nefna gin (áfengistegund) og gin ‘kjaftur’.

Höfundur

Guðrún Kvaran

prófessor

Útgáfudagur

25.10.2005

Spyrjandi

Kristrún Kristinsdóttir, f. 1988

Tilvísun

Guðrún Kvaran. „Hvert er samheiti orðsins 'samheiti'?“ Vísindavefurinn, 25. október 2005, sótt 27. júlí 2024, https://visindavefur.is/svar.php?id=5351.

Guðrún Kvaran. (2005, 25. október). Hvert er samheiti orðsins 'samheiti'? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=5351

Guðrún Kvaran. „Hvert er samheiti orðsins 'samheiti'?“ Vísindavefurinn. 25. okt. 2005. Vefsíða. 27. júl. 2024. <https://visindavefur.is/svar.php?id=5351>.

Chicago | APA | MLA

Senda grein til vinar

=

Hvert er samheiti orðsins 'samheiti'?
Orðið samheiti er í íslensku notað í sömu merkingu og erlenda orðið 'synonym', það er um orð sem hafa sömu eða næstum sömu merkingu eins og bifreið og bíll, fótbolti og knattspyrna. Mér er ekki kunnugt um að notað sé annað orð um þetta.

Sumir rugla saman orðunum samheiti og samyrði. Samyrði er notað um það sem á erlendum málum kallast homonym, það er tvö orð eru skrifuð og borin fram á sama hátt. Sem dæmi mætti nefna gin (áfengistegund) og gin ‘kjaftur’. ...