Sólin Sólin Rís 04:20 • sest 22:46 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 22:56 • Sest 14:35 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 10:51 • Síðdegis: 23:16 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 04:39 • Síðdegis: 16:58 í Reykjavík

LeiðbeiningarTil baka

Sendu inn spurningu

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Hvað er að vera kauði?

Guðrún Kvaran

Árnastofnun - mynd í *Árnarstofnun
Nafnorðið kauði er oftast notað um mann sem er álappalegur í útliti en þekkist einnig um þann sem er durtur í framkomu og hálfgerður leiðindapési og virðist sú merking eldri. Í safni Orðabókar Háskólans eru elst dæmi um hana frá 17. öld.

Sá sem er kauðalegur er ósmekklega og oft hirðuleysislega klæddur og lýsingarorðið kauðskur er einnig notað í sömu merkingu. Notkun lýsingarorðanna virðist hafa komið fram í lok 19. og í upphafi 20. aldar.

Ásgeir Blöndal Magnússon (Íslensk orðsifjabók 1989:450) tengir orðið kauði nafnorðinu kúði 'lítill og kubbslegur maður eða skepna' og er vafalaust skyldleiki þar á milli.

Mynd:

Spurningin í heild sinni hljóðaði svona:
Hvað er átt við þegar einhver er sagður vera kauði eða kauðslegur? Hvað merkir orðið kauði?

Höfundur

Guðrún Kvaran

prófessor

Útgáfudagur

7.12.2009

Spyrjandi

Sigurvin Guðmundsson

Tilvísun

Guðrún Kvaran. „Hvað er að vera kauði?“ Vísindavefurinn, 7. desember 2009, sótt 27. júlí 2024, https://visindavefur.is/svar.php?id=53698.

Guðrún Kvaran. (2009, 7. desember). Hvað er að vera kauði? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=53698

Guðrún Kvaran. „Hvað er að vera kauði?“ Vísindavefurinn. 7. des. 2009. Vefsíða. 27. júl. 2024. <https://visindavefur.is/svar.php?id=53698>.

Chicago | APA | MLA

Senda grein til vinar

...