Sólin Sólin Rís 04:20 • sest 22:46 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 22:56 • Sest 14:35 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 10:51 • Síðdegis: 23:16 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 04:39 • Síðdegis: 16:58 í Reykjavík

LeiðbeiningarTil baka

Sendu inn spurningu

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Hvað er átt við þegar sagt er um stelpur að þær séu algjörar gellur?

Guðrún Kvaran

Árnastofnun - mynd í *Árnarstofnun
Gella er slanguryrði og er notað um (glæsilega) stúlku. Í Orðabók um slangur, slettur, bannorð og annað utangarðsmál segir um gellu (1982:40): "kona, stelpa, gljátík, tískudrós: sveitagella, snobbgella, plastgella, gellustígvél." Sumir nota orðið í neikvæðri merkingu en algengara virðist þó að nota það sem hrósyrði um stúlku sem lítur glæsilega út og heldur sig að tískunni.

Slangurmerkingin er sennilega leidd af orðinu gella ‘kverksigi (í fiski)’. Það er aftur tökuorð úr dönsku gælle í sömu merkingu.

Önnur hugsanleg skýring er sú að enska orðið girl liggi að baki. Orðið virðist koma upp á hernámsárunum og amerískur framburður þess gæti verið kveikjan að íslenska orðinu.

Höfundur

Guðrún Kvaran

prófessor

Útgáfudagur

13.12.2005

Spyrjandi

Sigurður Vilmundur

Efnisorð

Tilvísun

Guðrún Kvaran. „Hvað er átt við þegar sagt er um stelpur að þær séu algjörar gellur?“ Vísindavefurinn, 13. desember 2005, sótt 27. júlí 2024, https://visindavefur.is/svar.php?id=5480.

Guðrún Kvaran. (2005, 13. desember). Hvað er átt við þegar sagt er um stelpur að þær séu algjörar gellur? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=5480

Guðrún Kvaran. „Hvað er átt við þegar sagt er um stelpur að þær séu algjörar gellur?“ Vísindavefurinn. 13. des. 2005. Vefsíða. 27. júl. 2024. <https://visindavefur.is/svar.php?id=5480>.

Chicago | APA | MLA

Senda grein til vinar

=

Hvað er átt við þegar sagt er um stelpur að þær séu algjörar gellur?
Gella er slanguryrði og er notað um (glæsilega) stúlku. Í Orðabók um slangur, slettur, bannorð og annað utangarðsmál segir um gellu (1982:40): "kona, stelpa, gljátík, tískudrós: sveitagella, snobbgella, plastgella, gellustígvél." Sumir nota orðið í neikvæðri merkingu en algengara virðist þó að nota það sem hrósyrði um stúlku sem lítur glæsilega út og heldur sig að tískunni.

Slangurmerkingin er sennilega leidd af orðinu gella ‘kverksigi (í fiski)’. Það er aftur tökuorð úr dönsku gælle í sömu merkingu.

Önnur hugsanleg skýring er sú að enska orðið girl liggi að baki. Orðið virðist koma upp á hernámsárunum og amerískur framburður þess gæti verið kveikjan að íslenska orðinu....