Sólin Sólin Rís 04:20 • sest 22:46 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 22:56 • Sest 14:35 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 10:51 • Síðdegis: 23:16 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 04:39 • Síðdegis: 16:58 í Reykjavík

LeiðbeiningarTil baka

Sendu inn spurningu

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Hvað þýðir að vera starsýnn og í hvaða orðflokki er orðið?

Guðrún Kvaran

Árnastofnun - mynd í *Árnarstofnun
Lýsingarorðið starsýnn merkir ‘sá sem starir lengi á e-ð, er stareygður’. Orðið er samsett úr star- af sögninni stara ‘horfa lengi og fast á e-ð’ og sýnn ‘sá sem sér’. Síðari liðurinn -sýnn er til dæmis notaður í orðunum:
  • einsýnn ‘auðsær; eineygður; hlutdrægur’
  • víðsýnn ‘hleypidómalaus’
  • þröngsýnn ‘skammsýnn, ófrjálslyndur’
Í eldra máli var notað sambandið e-r er starsýnn á e-ð í merkingunni ‘e-r einblínir á e-ð, horfir fast á e-ð’. Elstu dæmi Orðabókar Háskólans eru frá því um miðja 17. öld en þetta samband er lítið notað nú. Allalgengt er að nota orðasambandið e-m verður starsýnt á e-ð í merkingunni ‘e-m verður tíðlitið á e-ð eða e-n’ og stendur lýsingarorðið þá í hvorugkyni.

Höfundur

Guðrún Kvaran

prófessor

Útgáfudagur

14.12.2005

Spyrjandi

Halldór Þrastarson
Eyjólfur Ben Erlingsson
Ísak Kristinsson

Efnisorð

Tilvísun

Guðrún Kvaran. „Hvað þýðir að vera starsýnn og í hvaða orðflokki er orðið?“ Vísindavefurinn, 14. desember 2005, sótt 27. júlí 2024, https://visindavefur.is/svar.php?id=5483.

Guðrún Kvaran. (2005, 14. desember). Hvað þýðir að vera starsýnn og í hvaða orðflokki er orðið? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=5483

Guðrún Kvaran. „Hvað þýðir að vera starsýnn og í hvaða orðflokki er orðið?“ Vísindavefurinn. 14. des. 2005. Vefsíða. 27. júl. 2024. <https://visindavefur.is/svar.php?id=5483>.

Chicago | APA | MLA

Senda grein til vinar

=

Hvað þýðir að vera starsýnn og í hvaða orðflokki er orðið?
Lýsingarorðið starsýnn merkir ‘sá sem starir lengi á e-ð, er stareygður’. Orðið er samsett úr star- af sögninni stara ‘horfa lengi og fast á e-ð’ og sýnn ‘sá sem sér’. Síðari liðurinn -sýnn er til dæmis notaður í orðunum:

  • einsýnn ‘auðsær; eineygður; hlutdrægur’
  • víðsýnn ‘hleypidómalaus’
  • þröngsýnn ‘skammsýnn, ófrjálslyndur’
Í eldra máli var notað sambandið e-r er starsýnn á e-ð í merkingunni ‘e-r einblínir á e-ð, horfir fast á e-ð’. Elstu dæmi Orðabókar Háskólans eru frá því um miðja 17. öld en þetta samband er lítið notað nú. Allalgengt er að nota orðasambandið e-m verður starsýnt á e-ð í merkingunni ‘e-m verður tíðlitið á e-ð eða e-n’ og stendur lýsingarorðið þá í hvorugkyni....