Sólin Sólin Rís 05:15 • sest 21:38 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 01:18 • Sest 04:30 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 07:36 • Síðdegis: 19:53 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 01:39 • Síðdegis: 13:42 í Reykjavík
Árnastofnun - mynd í *Árnarstofnun

Hver er uppruni orðsins drossía?

Guðrún Kvaran

Orðið drossía var talsvert notað um glæsilega bifreið en er minna notað nú þótt það heyrist eitthvað.

1929 Cadillac - sannkölluð drossía! Hægt er að rekja orðið til rússnesks orðs yfir vinnuvagn.

Elstu dæmi í Ritmálssafni Orðabókar Háskólans eru frá miðri 20. öld. Orðið mun hafa borist hingað úr dönsku drosche, droske sem aftur hafði þegið orðið á 19. öld úr þýsku Drosche ‛léttur vagn’, síðar einnig ‛leigubifreið’. Í þýsku barst orðið úr rússnesku drožki, myndað með smækkunarviðskeyti af dróga ‛vinnuvagn’.

Mynd:

Höfundur

Guðrún Kvaran

prófessor

Útgáfudagur

11.10.2010

Spyrjandi

Kári Waage

Tilvísun

Guðrún Kvaran. „Hver er uppruni orðsins drossía?“ Vísindavefurinn, 11. október 2010. Sótt 26. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=56766.

Guðrún Kvaran. (2010, 11. október). Hver er uppruni orðsins drossía? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=56766

Guðrún Kvaran. „Hver er uppruni orðsins drossía?“ Vísindavefurinn. 11. okt. 2010. Vefsíða. 26. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=56766>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

Mynd:...