Sólin Sólin Rís 05:40 • sest 21:16 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 15:13 • Sest 05:59 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 03:57 • Síðdegis: 16:31 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 10:23 • Síðdegis: 22:34 í Reykjavík

Er til orðatiltækið 'að setja miðið hátt'? Mér finnst það hljóma betur en 'að setja markið hátt'

Guðrún Kvaran

Í seðlasöfnum Orðabókar Háskólans er engin heimild um sambandið að setja miðið hátt. Aftur á móti er vel þekkt að maður setji markið hátt ef hann ætlar sér mikið. Mark merkir þarna ‛markmið, takmark; skotmark’.

Sá sem setur sér metnaðarfullt markmið stefnir hátt. Orðasambandið þekkist frá síðari hluta 20. aldar. Líkingin er hugsanlega sótt til íþróttamáls eins og orðasambandið að skjóta yfir markið ‛ganga of langt í ákefð’.

Mynd:

Höfundur

Guðrún Kvaran

prófessor

Útgáfudagur

11.11.2010

Spyrjandi

Ívar Þormar, f. 1996

Tilvísun

Guðrún Kvaran. „Er til orðatiltækið 'að setja miðið hátt'? Mér finnst það hljóma betur en 'að setja markið hátt' .“ Vísindavefurinn, 11. nóvember 2010. Sótt 19. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=57326.

Guðrún Kvaran. (2010, 11. nóvember). Er til orðatiltækið 'að setja miðið hátt'? Mér finnst það hljóma betur en 'að setja markið hátt' . Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=57326

Guðrún Kvaran. „Er til orðatiltækið 'að setja miðið hátt'? Mér finnst það hljóma betur en 'að setja markið hátt' .“ Vísindavefurinn. 11. nóv. 2010. Vefsíða. 19. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=57326>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

Mynd:...