Sólin Sólin Rís 05:19 • sest 21:35 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 25:18 • Sest 04:56 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 07:07 • Síðdegis: 19:24 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 01:08 • Síðdegis: 13:14 í Reykjavík

Af hverju eru karlmenn með geirvörtur?

JGÞ

Sennilegasta skýringin á því af hverju karlmenn hafa geirvörtur er einfaldlega sú að þeir eru náskyldir konum sem hafa geirvörtur til að fæða afkvæmi sín.

Karldýr spendýra hafa ekki öll geirvörtur. Stóðhestar og karldýr nagdýra hafa ekki geirvörtur, en hundar hafa þær. Karlmenn hafa bæði mjólkurkirtla og mjólkurganga og stundum kemur örlítil mjólk úr geirvörtum nýbura, hvort sem þeir eru strákar eða stelpur. Það er vegna þess að hormón frá móðurinni er í nýburanum og það kemur af stað mjólkurframleiðslu.

Karlmenn gætu í raun haft börn á brjósti ef þeir framleiddu hormónið sem kemur mjólkurframleiðslu af stað. Hægt er að lesa meira um karlmenn og geirvörtur í ítarlegu svari Eyju Margrétar Brynjarsdóttur við spurningunni Af hverju hafa karlmenn geirvörtur?

Mynd: The world according to Rick.

Höfundur

Jón Gunnar Þorsteinsson

bókmenntafræðingur og ritstjóri Vísindavefsins

Útgáfudagur

4.4.2006

Spyrjandi

Margrét Gísladóttir, f. 1995

Tilvísun

JGÞ. „Af hverju eru karlmenn með geirvörtur?“ Vísindavefurinn, 4. apríl 2006. Sótt 25. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=5772.

JGÞ. (2006, 4. apríl). Af hverju eru karlmenn með geirvörtur? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=5772

JGÞ. „Af hverju eru karlmenn með geirvörtur?“ Vísindavefurinn. 4. apr. 2006. Vefsíða. 25. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=5772>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

=

Af hverju eru karlmenn með geirvörtur?
Sennilegasta skýringin á því af hverju karlmenn hafa geirvörtur er einfaldlega sú að þeir eru náskyldir konum sem hafa geirvörtur til að fæða afkvæmi sín.

Karldýr spendýra hafa ekki öll geirvörtur. Stóðhestar og karldýr nagdýra hafa ekki geirvörtur, en hundar hafa þær. Karlmenn hafa bæði mjólkurkirtla og mjólkurganga og stundum kemur örlítil mjólk úr geirvörtum nýbura, hvort sem þeir eru strákar eða stelpur. Það er vegna þess að hormón frá móðurinni er í nýburanum og það kemur af stað mjólkurframleiðslu.

Karlmenn gætu í raun haft börn á brjósti ef þeir framleiddu hormónið sem kemur mjólkurframleiðslu af stað. Hægt er að lesa meira um karlmenn og geirvörtur í ítarlegu svari Eyju Margrétar Brynjarsdóttur við spurningunni Af hverju hafa karlmenn geirvörtur?

Mynd: The world according to Rick. ...