Sólin Sólin Rís 05:40 • sest 21:16 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 15:13 • Sest 05:59 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 03:57 • Síðdegis: 16:31 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 10:23 • Síðdegis: 22:34 í Reykjavík
Árnastofnun - mynd í *Árnarstofnun

Hverjir eru þessir gárungar?

Guðrún Kvaran

Orðið gárungur, einnig gárungi, er notað í merkingunum ‛flón; galgopi, háðfugl; montrass’. Elstu dæmi í Ritmálssafni Orðabókar Háskólans eru í fleirtölu og þar sem fleirtalan af báðum orðmyndunum er hin sama, gárungar, er erfitt að segja um hvor þeirra er eldri. Elstu dæmi eru frá 17. öld. Þær merkingar sem eru algengastar í dag eru ‛montrass’ og ‛háðfugl’. Algengt er að nota: „Gárungarnir segja …“ þegar verið er að vísa til „orðsins á götunni“, einhvers sem rætt er manna á milli um einhver málefni en enginn sérstakur tilgreindur sem heimildarmaður.

Algengustu merkingar orðsins gárungar í dag eru 'montrass' og 'háðfugl'.

Ásgeir Blöndal Magnússon tengir gárung/gárunga við nafnorðið gár ‛spott, gys’ og sögninni að gára ‛gera gys að’ og vísar í nýnorska orðið gåre ‛flón, bjáni’ (Íslensk orðsifjabók 1989:230).

Frekara lesefni á Vísindavefnum:

Mynd:

Höfundur

Guðrún Kvaran

prófessor

Útgáfudagur

14.2.2011

Spyrjandi

Ingveldur St. Ingveldardóttir, Guðmundur Magnússon

Tilvísun

Guðrún Kvaran. „Hverjir eru þessir gárungar?“ Vísindavefurinn, 14. febrúar 2011. Sótt 19. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=58207.

Guðrún Kvaran. (2011, 14. febrúar). Hverjir eru þessir gárungar? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=58207

Guðrún Kvaran. „Hverjir eru þessir gárungar?“ Vísindavefurinn. 14. feb. 2011. Vefsíða. 19. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=58207>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

Mynd:...