Sólin Sólin Rís 05:19 • sest 21:35 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 25:18 • Sest 04:56 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 07:07 • Síðdegis: 19:24 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 01:08 • Síðdegis: 13:14 í Reykjavík
Árnastofnun - mynd í *Árnarstofnun

Tengist það eitthvað hjúskaparstöðu þegar sagt er að einhver sé makalaus?

Guðrún Kvaran

Orðið maki er notað um annað hjóna eða sambúðarfólks, hvort sem um er að ræða karl eða konu, en einnig um dýrapar. Önd, sem ekki hefur náð sér í maka að vori, syndir um makalaus. Maki á sér samsvaranir í grannmálunum, til dæmis í færeysku maki, nýnorsku og sænsku make.

Makalaus önd?

Af allt öðrum uppruna er orðið makalaus þegar það er notað í merkingunni ‛einstakur, dæmalaus’, til dæmis „Þetta er alveg makalaus vitleysa“, það er ‛dæmalaus’, og „Hún er alveg makalaus tungumálakona“, það er ‛einstök’. Sambandið er sem sagt bæði notað í hneykslistón og sem hrósyrði. Í þessum tilvikum er um tökuorð frá 18. öld að ræða úr dönsku mageløs sem notað er í sömu merkingu.

Frekara lesefni á Vísindavefnum:

Mynd:

Upprunalega spurningin hljóðaði svo:
Tengist það eitthvað hjúskaparstöðu manns „að vera makalaus“? Hvað er átt við með því orðatiltæki? Hvað er svona að því að vera án maka?

Höfundur

Guðrún Kvaran

prófessor

Útgáfudagur

28.3.2011

Spyrjandi

N.N.

Tilvísun

Guðrún Kvaran. „Tengist það eitthvað hjúskaparstöðu þegar sagt er að einhver sé makalaus?“ Vísindavefurinn, 28. mars 2011. Sótt 25. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=58673.

Guðrún Kvaran. (2011, 28. mars). Tengist það eitthvað hjúskaparstöðu þegar sagt er að einhver sé makalaus? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=58673

Guðrún Kvaran. „Tengist það eitthvað hjúskaparstöðu þegar sagt er að einhver sé makalaus?“ Vísindavefurinn. 28. mar. 2011. Vefsíða. 25. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=58673>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

...