Sólin Sólin Rís 05:15 • sest 21:38 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 01:18 • Sest 04:30 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 07:36 • Síðdegis: 19:53 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 01:39 • Síðdegis: 13:42 í Reykjavík
Árnastofnun - mynd í *Árnarstofnun

Hvað merkir orðasambandið „von úr viti“? Til dæmis að eitthvað endist von úr viti?

Guðrún Kvaran

Orðasambandið von úr viti er þekkt frá síðari hluta 18. aldar í merkingunni ‛afar lengi’. Það er notað með ýmsum sögnum til dæmis endast, kjafta, ríða, spyrja einhvern von úr viti. Ekki er alveg ljóst hvernig sambandið er hugsað. Vit merkir ‛skynsemi, greind, hyggindi’ og von ‛eitthvað sem maður þráir, óskar, væntir að verði’. Mér dettur helst í hug að upphaflega hafi verið átt við eitthvað sem entist eða stóð yfir lengur en skynsamlegt hafi verið að vonast til. Síðan hafi merkingin orðið almennari og víðari og orðasambandið notað með fleiri sögnum.

Skemmtunin entist von úr viti!

Mynd:

Höfundur

Guðrún Kvaran

prófessor

Útgáfudagur

26.7.2011

Spyrjandi

Magnús Grétar Ingibergsson

Tilvísun

Guðrún Kvaran. „Hvað merkir orðasambandið „von úr viti“? Til dæmis að eitthvað endist von úr viti?“ Vísindavefurinn, 26. júlí 2011. Sótt 26. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=59627.

Guðrún Kvaran. (2011, 26. júlí). Hvað merkir orðasambandið „von úr viti“? Til dæmis að eitthvað endist von úr viti? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=59627

Guðrún Kvaran. „Hvað merkir orðasambandið „von úr viti“? Til dæmis að eitthvað endist von úr viti?“ Vísindavefurinn. 26. júl. 2011. Vefsíða. 26. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=59627>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

Mynd:...