Sólin Sólin Rís 05:19 • sest 21:35 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 25:18 • Sest 04:56 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 07:07 • Síðdegis: 19:24 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 01:08 • Síðdegis: 13:14 í Reykjavík
Árnastofnun - mynd í *Árnarstofnun

Geturðu frætt mig um orðið 'hlaupastelpa'?

Guðrún Kvaran

Orðið 'hlaupastelpa' hefur þrenns konar merkingu.

Í fyrsta lagi er það notað um léttúðuga stelpu og stelpu sem mikið er á ferðinni. Merkingin er þá vanalega heldur niðrandi.

Í öðru lagi er orðið notað um ákveðinn hlut í rokk, það er stöng sem tengir saman fótafjölina og rokksveifina. Þessi stöng er einnig nefnd 'smali' og 'smalatré'.

Í þriðja lagi er hlaupastelpa notað um ljástöng í sláttuvél. Nafnið er þar sennilega komið frá hlaupastelpunni í rokknum.

Mynd: Heimilisiðnaðarskólinn - Námskeiðalýsingar: Tóvinna.

Höfundur

Guðrún Kvaran

prófessor

Útgáfudagur

5.7.2006

Spyrjandi

Valgeir Guðmundsson

Tilvísun

Guðrún Kvaran. „Geturðu frætt mig um orðið 'hlaupastelpa'?“ Vísindavefurinn, 5. júlí 2006. Sótt 25. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=6048.

Guðrún Kvaran. (2006, 5. júlí). Geturðu frætt mig um orðið 'hlaupastelpa'? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=6048

Guðrún Kvaran. „Geturðu frætt mig um orðið 'hlaupastelpa'?“ Vísindavefurinn. 5. júl. 2006. Vefsíða. 25. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=6048>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

=

Geturðu frætt mig um orðið 'hlaupastelpa'?
Orðið 'hlaupastelpa' hefur þrenns konar merkingu.

Í fyrsta lagi er það notað um léttúðuga stelpu og stelpu sem mikið er á ferðinni. Merkingin er þá vanalega heldur niðrandi.

Í öðru lagi er orðið notað um ákveðinn hlut í rokk, það er stöng sem tengir saman fótafjölina og rokksveifina. Þessi stöng er einnig nefnd 'smali' og 'smalatré'.

Í þriðja lagi er hlaupastelpa notað um ljástöng í sláttuvél. Nafnið er þar sennilega komið frá hlaupastelpunni í rokknum.

Mynd: Heimilisiðnaðarskólinn - Námskeiðalýsingar: Tóvinna....