Sólin Sólin Rís 04:20 • sest 22:46 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 22:56 • Sest 14:35 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 10:51 • Síðdegis: 23:16 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 04:39 • Síðdegis: 16:58 í Reykjavík

LeiðbeiningarTil baka

Sendu inn spurningu

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Hvaða mál er með vexti?

Guðrún Kvaran

Árnastofnun - mynd í *Árnarstofnun
Nafnorðið mál hefur fleiri en eina merkingu. Í orðasambandinu svo/þannig er mál með vexti ‛því er þannig háttað’ merkir mál ‛málefni, málavextir’. Elsta dæmi í söfnum Orðabókar Háskólans er frá upphafi 17. aldar en Jón Friðjónsson bendir á eldra dæmi frá upphafi 16. aldar í ritinu Mergur málsins (1993:427). Nafnorðið vöxtur merkir ‛það að vaxa, aukast’ og orðrétt merking er þá ‛málið er með þannig vöxt’ og er forsetningin með þá auðskiljanleg.

Upprunalega spurningin hljóðaði svo:
Hvaða mál er með vexti? Hver er uppruni orðasambandsins mál með vexti. Hvers vegna er forsetningin með notuð hér og við hvað á vöxtur?

Höfundur

Guðrún Kvaran

prófessor

Útgáfudagur

19.3.2012

Spyrjandi

Sigurður Bjarnason

Tilvísun

Guðrún Kvaran. „Hvaða mál er með vexti?“ Vísindavefurinn, 19. mars 2012, sótt 27. júlí 2024, https://visindavefur.is/svar.php?id=61478.

Guðrún Kvaran. (2012, 19. mars). Hvaða mál er með vexti? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=61478

Guðrún Kvaran. „Hvaða mál er með vexti?“ Vísindavefurinn. 19. mar. 2012. Vefsíða. 27. júl. 2024. <https://visindavefur.is/svar.php?id=61478>.

Chicago | APA | MLA

Senda grein til vinar

...